ÍST EN ISO/IEC 27001:2023+AC:2025

Staða:

Gildistaka - 10.9.2023

Íslenskt heiti:

Íslensk útgáfa með leiðréttingu AC:2025 - Upplýsingaöryggi, netöryggi og persónuvernd - Stjórnunarkerfi um upplýsingaöryggi - Kröfur

Enskt heiti:

Corrected Icelandic version with AC:2025 - Information security, cybersecurity and privacy protection - Information security management systems - Requirements (ISO/IEC 27001:2022)

Tengdur staðall:

ISO/IEC 27001:2022

Tækninefnd:

CEN/CLC/JTC 13

ICS flokkur:

3.100, 35.030

Auglýst:

11.9.2023

Umfang (scope):

Villa uppgötvaðist í ÍST EN ISO/IEC 27001:2023 þar sem grein 9.3.3 hafði fallið
niður bæði í íslenska og enska hluta staðalsins. Því var gefin út leiðréttingin ÍST EN ISO/IEC 27001:2023/AC:2025 og í framhaldi af því þessi staðall ÍST EN ISO/IEC 27001:2023+AC:2025 þar sem búið er að leiðrétta þessa villu í texta staðalsins.

Í þessu skjali eru skilgreindar kröfur sem gilda um að koma á, innleiða, viðhalda og bæta stöðugt stjórnunarkerfi um upplýsingaöryggi í samhengi skipulagsheildar. Þetta skjal felur einnig í sér kröfur varðandi mat og meðferð á upplýsingaöryggisáhættu sem sniðnar eru að þörfum skipulagsheildarinnar. Þær kröfur sem settar eru fram í þessu skjali eru almennar og er ætlunin að þeim megi beita á allar skipulagsheildir, óháð tegund, stærð og eðli. Óásættanlegt er að sleppa einhverjum af þeim kröfum sem tilgreindar eru í greinum 4 til 10 þegar skipulagsheild lýsir yfir samræmi við þetta skjal.

Verð 25.370 kr.
Skráðu þig inn til þess að skoða sýnishorn
Skráðu þig inn til þess að vakta þennan staðal
Skráðu þig inn til þess að kaupa þennan staðal
Mynd sem fylgir ÍST EN ISO/IEC 27001:2017 (ísl/en)

ÍST EN ISO/IEC 27001:2017 (ísl/en)

Í þessum alþjóðastaðli eru tilgreindar kröfur sem gilda um að koma á, innleiða, viðhalda og bæta stöðugt stjórnunarkerfi um upplýsingaöryggi í samhengi skipulagsheildarinnar. Þessi alþjóðastaðall felur einnig í sér kröfur varðandi mat og meðferð á upplýsingaöryggisáhættu sem sniðnar eru að þörfum skipulagsheildarinnar. Þær kröfur sem settar eru fram í þessum alþjóðastaðli eru almennar og er ætlunin að þeim megi beita á allar skipulagsheildir, óháð tegund, stærð og eðli. Óásættanlegt er að sleppa einhverjum af þeim kröfum sem tilgreindar eru í greinum 4 til 10 þegar skipulagsheild lýsir yfir samræmi við þennan alþjóðastaðal.
Verð: 21.177 kr.
Mynd sem fylgir prEN ISO/IEC  27001:2023/prA1

prEN ISO/IEC 27001:2023/prA1

Upplýsingaöryggi, netöryggi og persónuvernd - Stjórnunarkerfi um upplýsingaöryggi - Kröfur
Verð: 3.168 kr.
Menu
Top