Stöðlunarverkefni á ábyrgð stjórnar

Stundum háttar svo til að aðkallandi stöðlunarverkefni berast inn á borð Staðlaráðs án þess að til sé skilgreint fagstaðlaráð á því sviði. Í slíkum tilvikum skipar stjórn Staðlaráðs tækninefnd sem fer með stöðlunarvinnuna á ábyrgð stjórnar skv. reglum um þátttöku í staðlastarfi.

Þessar upplýsingar voru uppfærðar í september 2026. Þá voru eingöngu þýðingarverkefni á ábyrgð stjórnar.

ISO 55000:2024 og ISO 55001:2024- Eignastjórnun. Íslenskri þýðingu lýkur á haustmánuðum og verða staðlarnir gefnir út í framhaldi.

ISO 45010:2026 - Stjórnunarkerfi um heilbrigði og öryggi á vinnustað - Tíðaheilsa og tíðahvörf. Leiðbeiningar til vinnuveitenda um hvernig unnt er að koma til móts við áskoranir sem tengjast blæðingum, breytingaskeiði og tíðahvörfum. Íslenskri þýðingu lýkur á haustmánuðum og verður staðallinn gefinn út í íslenskri þýðingu í framhaldi. 

ISO 9001:2026 - Gæðastjórnun - Unnið er að íslenskri þýðingu sem áætlað er að komi út í byrjun árs 2027.

Menu
Top