Staðlaráð

Kynntu þér heim staðla með ókeypis aðgangi í einn dag!

Staðlaráð Íslands býður þér einstakt tækifæri til að kynna þér staðla og staðlastarf með ókeypis aðgangi að staðli í einn dag! Þetta er frábært tækifæri fyrir fyrirtæki, stofnanir, fræðimenn og einstaklinga til að kynnast hvernig staðlar styðja við þróun, gæði og öryggi í hinum ýmsu geirum samfélagsins.

Skráðu þig og upplifðu hvernig staðlar geta hjálpað þér að ná árangri – hvort sem þú ert að leita að upplýsingum um sjálfbærni, tækni, byggingariðnað eða einhvern annan þátt samfélagsins.

Skráðu þig hér



Hvað gera staðlar fyrir þig?

Staðlar tryggja að vörur og þjónusta sé örugg og áreiðanleg. Þeir leiðbeina stjórnendum fyrirtækja um sjálfbærni og góða stjórnarhætti til að tryggja framtíð þar sem við getum með áreiðanlegum og einföldum hætti treyst því að vörur og þjónusta uppfylli ítrustu kröfur

Í hnotskurn eru staðlar bræðingur veraldlegra og siðferðilegra viðurkenndra viðmiða sem auðvelda og létta okkur daglegt líf


Hvað er staðall?

Sammælt svar okkar færustu sérfræðinga við spurningunni "Hvernig er best að gera þetta?"

Staðlar styðja við löggjöf

Löggjafar víða um heim nýta staðla sem stuðning við löggjöf með valkvæðum eða bindandi hætti

Ávinningur staðlanotkunar

Fyrir fyrirtæki er það fyrst og fremst efnahagslegur ávinningur en fyrir neytendur tryggja staðlar gæði

Fimm fagstaðlaráð

Á vettvangi Staðlaráðs eru rekin fimm fagstaðlaráð sem hafa umsjón með innlendri staðlagerð


Íslenskir staðlar

Staðlaráð Íslands starfar samkvæmt lögum um staðla. Hlutverk Staðlaráðs er að vera samstarfsvettvangur þeirra sem áhuga hafa á staðlastarfi og eiga hagsmuna að gæta af gerð og notkun staðla hérlendis. Staðlaráð hefur að leiðarljósi að auka vöxt og nýsköpun íslensks atvinnulífs og bæta starfsskilyrði þess, ásamt því að bæta vernd og öryggi neytenda. Staðlaráð veitir ráðgjöf, upplýsingar og þjónustu um hvaðeina sem lýtur að stöðlum og stöðlun. Jafnframt sér Staðlaráð um sölu staðla frá fjölmörgum staðlastofnunum.  

Fréttir

Menu
Top