Kynningarfundur um nýja ISO 9001:2026 staðalinn verður haldinn 4. nóvember kl. 09:00–11:00 á Hótel Öskju, Nauthólsvegi. (Gamla Natura og hótel Loftleiðir fyrir þá sem muna svo langt aftur!) Farið verður yfir helstu breytingar frá núverandi útgáfu staðalsins, hvað þær þýða fyrir gæðastjórnun og hvaða atriði fyrirtæki og stofnanir þurfa sérstaklega að hafa í huga við innleiðingu og aðlögun gæðakerfa.
Viðburðurinn er ætlaður starfandi gæðastjórum og lögð verður áhersla á hagnýta nálgun, umræður og það sem skiptir mestu máli í framkvæmd. Skráning er nauðsynleg og sætafjöldi takmarkaður.