ÍST ISO 45001:2018 (íslensk þýðing)

Staða:

Fellur úr gildi - 29.2.2024

Íslenskt heiti:

Stjórnunarkerfi um heilbrigði og öryggi á vinnustað - Kröfur ásamt leiðsögn um notkun

Enskt heiti:

Occupational health and safety management systems - Requirements with guidance for use

Tengdur staðall:

ISO 45001:2018

Tækninefnd:

ISO/TC 283

ICS flokkur:

13.100, 3.100

Auglýst:

29.2.2024

Umfang (scope):

Í þessu skjali eru tilgreindar kröfur sem varða stjórnunarkerfi um heilbrigði og öryggi á vinnustað (H&ÖV) og veittar upplýsingar um notkun þess til þess að gera skipulagsheildum kleift að bjóða uppá örugga og heilsusamlega vinnustaði með því að koma í veg fyrir vinnutengda áverka og vanheilsu, svo og að bæta H&ÖV frammistöðu sína með forvirkum hætti. Skjali þessu má beita í hvaða skipulagsheild sem er sem vill koma á, innleiða og viðhalda H&ÖV stjórnunarkerfi í því skyni að bæta öryggi og heilbrigði á vinnustað, eyða hættum og lágmarka H&ÖV áhættu (þar með talda kerfisannmarka), nýta H&ÖV tækifæri og taka á frábrigðum í H&ÖV stjórnunarkerfinu sem tengjast starfsemi hennar. Þetta skjal hjálpar skipulagsheild að ná fram ætluðum útkomum H&ÖV stjórnunarkerfis hennar. Í samræmi við H&ÖV stefnu skipulagsheildarinnar fela ætlaðar útkomur H&ÖV stjórnunarkerfis í sér: a) stöðugar umbætur á H&ÖV frammistöðu, b) hlítingu lagakrafna og annarra krafna, c) að ná H&ÖV markmiðum. Þessu skjali má beita í hvaða skipulagsheild sem er án tillits til stærðar, tegundar og starfsemi. Það á við um H&ÖV áhættu sem er undir stjórn skipulagsheildarinnar, þar sem tekið er mið af þáttum á borð við samhengið sem skipulagsheildin starfar í og þörfum og væntingum starfsmanna hennar og annarra hagsmunaaðila. Í þessu skjali eru ekki tilgreind sérstök viðmið um H&ÖV frammistöðu, né heldur er það forskrift varðandi hönnun H&ÖV stjórnunarkerfis. Þetta skjal gerir skipulagsheild kleift, með H&ÖV stjórnunarkerfi sínu, að samþætta aðra þætti heilbrigðis og öryggis, svo sem vellíðan og velferð starfsmanna. Í þessu skjali er ekki tekið á málefnum á borð við öryggi vöru, eignatjón eða umhverfisáhrif umfram þá áhættu sem starfsmenn og aðrir viðeigandi hagsmunaaðilar sæta. Þetta skjal má nota í heild sinni eða að hluta, til þess að bæta með kerfisbundnum hætti heilbrigðis-og öryggisstjórnun á vinnustað. Hins vegar eru fullyrðingar um samræmi við þetta skjal óásættanlegar nema allar kröfur þess séu felldar inn í H&ÖV stjórnunarkerfi skipulagsheildar og þær uppfylltar án undantekninga.

Hafðu samband í síma 520-7150 varðandi þennan staðal.

Menu
Top