ÍST EN ISO 14001:2004 (íslensk þýðing)

Staða:

Fellur úr gildi - 15.11.2015

Íslenskt heiti:

Umhverfisstjórnunarkerfi - Kröfur ásamt leiðsögn um notkun

Enskt heiti:

Environmental management systems - Requirements with guidance for use

Tengdur staðall:

ISO 14001:2004

Tækninefnd:

ISO/TC 207

ICS flokkur:

13.020

Auglýst:

18.11.2015

Umfang (scope):

Í þessum alþjóðastaðli eru tilgreindar kröfur til umhverfisstjórnunarkerfis sem gera fyrirtæki kleift að þróa og innleiða stefnu og markmið í umhverfismálum með hliðsjón af lagalegum kröfum og öðrum kröfum sem fyrirtækið undirgengst, og upplýsingum um umtalsverð umhverfisáhrif. Hann gildir um þá umhverfisþætti sem fyrirtækið getur stýrt og haft áhrif á. Í staðlinum sjálfum eru ekki settir fram sérstakir mælikvarðar á frammistöðu í umhverfismálum. Þessum alþjóðlega staðli má beita í hverju því fyrirtæki sem vill a) koma upp, innleiða, viðhalda og bæta umhverfisstjórnunarkerfi, b) fá fullvissu um að starfsemi þess samræmist yfirlýstri umhverfisstefnu þess, c) sýna fram á samræmi við þennan alþjóðastaðal með því að 1) ákvarða og lýsa sjálft yfir samræmi, eða 2) leita eftir staðfestingu á samræmi hjá aðilum sem hafa hagsmuna að gæta varðandi fyrirtækið, s.s. viðskiptavinum, eða 3) leita eftir staðfestingu á eigin yfirlýsingu um samræmi hjá aðila utan fyrirtækisins, eða 4) leita eftir vottun utanaðkomandi fyrirtækis á umhverfisstjórnunarkerfi sínu. Allar kröfur þessa alþjóðastaðals ættu að vera felldar inn í hvaða umhverfisstjórnunarkerfi sem er. Það að hve miklu leyti þeim er beitt fer eftir atriðum eins og umhverfisstefnu fyrirtækisins, eðli starfseminnar, vörum og þjónustu, staðsetningu og aðstæðunum sem fyrirtækið starfar við. Í viðauka A við þennan alþjóðastaðal er til fróðleiks veitt leiðsögn um notkun hans.

Hafðu samband í síma 520-7150 varðandi þennan staðal.

Mynd sem fylgir ÍST EN ISO 14001:2004/AC:2009

ÍST EN ISO 14001:2004/AC:2009

Umhverfisstjórnunarkerfi - Kröfur ásamt leiðsögn um notkun
Verð: kr.
Mynd sem fylgir ÍST EN ISO 14001:2015 (íslensk þýðing)

ÍST EN ISO 14001:2015 (íslensk þýðing)

Í þessum alþjóðastaðli eru tilgreindar kröfur sem gerðar eru til umhverfisstjórnunarkerfis sem skipulagsheild getur notað til að bæta umhverfisframmistöðu sína. Þessi alþjóðastaðall er ætlaður fyrir skipulagsheildir sem vilja hafa kerfisbundna stjórn á umhverfisábyrgð sinni og leggja þannig sitt af mörkum til grunnstoða um umhverfislega sjálfbærni. Þessi alþjóðastaðall hjálpar skipulagsheild að ná tilætlaðri útkomu með umhverfisstjórnunarkerfi sínu, en slíkt hefur gildi fyrir bæði umhverfið, skipulagsheildina sjálfa sem og hagsmunaaðila. Í samræmi við umhverfisstefnu skipulagsheildarinnar felur tilætluð útkoma umhverfisstjórnunarkerfis í sér: – bætta umhverfisframmistöðu, – uppfyllingu á hlítingu við skyldur, – að ná umhverfismarkmiðum. Allar skipulagsheildir, óháð stærð, gerð og eðli geta beitt þessum alþjóðastaðli, og hann gildir um umhverfisþætti þeirrar starfsemi og þjónustu sem skipulagsheildin hefur ákvarðað að mögulegt sé að stýra eða hafa áhrif á með tilliti til vistferi
Verð: 28.954 kr.
Menu
Top