Þann 4.10.2023 var haldinn 30 mínútna kynningarfundur um breytingar í ÍST HB 200:2023. Það voru Ófeigur Sigurðarsson hjá Rafskoðun og Guðmundur Valsson ritari Rafstaðlaráðs sem fóru yfir breytingarnar sem voru í eftirfarandi köflum.
Hér er tengill á upptöku af kynningunni en tæknin var eitthvað að stríða um miðbik upptökunnar þannig að glærurnar sem fylgdu kynningu Guðmundar birtust ekki á upptökunni, en hljóðupptakan er í lagi. Glærurnar frá kynningunni hans Guðmundar má nálgast HÉR.