Rafrænt reikningaferli – Innleiðing á PEPPOL BIS Billing 3.0 og EN 16931
Enskt heiti:
Electronic Billing for Iceland
Tækninefnd:
ÍST/FUT
ICS flokkur:
35.240, 3.100
Auglýst:
20.12.2021
Umfang (scope):
Tækniforskrift fyrir rafrænan reikning er gefin út af Staðlaráði Íslands.Tækniforskrift þessi byggir á [OpenPeppol] skilgreiningu á rafrænum reikning [PEPPOL BIS Billing 3.0] sem er afmörkuð innleiðing á Evrópustaðli fyrir rafrænan reikning ÍST EN 16931 sem gefinn er út af Evrópsku Staðlasamtökunum CEN og Staðlaráð Íslands er aðili að.Tækniforskriftin lýsir uppbyggingu rafræns reiknings eins og íslensk lög og viðskiptahefðir mæla fyrir um og afmarkast við skilgreiningar í [BIS3 Billing] þannig að sé túlkun óljós eða stangast á þá gilda þær skilgreiningar.Tækniforskriftin er ætluð þeim sem vinna við innleiðingu rafrænna reikninga hjá fyrirtækjum sem gefa út slíka reikninga og/eða taka við þeim. Tækniforskriftin gerir ráð fyrir að lesandinn hafi almenna þekkingu á forritun og notkun XML skjala (e.Extensible Markup Language) og grunnþekkingu á UBL skeytastaðlinum.Markmiðið með útgáfu tækniforskriftarinnar er að styðja við innleiðingu rafrænna reikninga hjá litlum jafnt sem stórum fyrirtækjum og stofnunum með íslenskri skilgreiningu sem uppfyllir Evrópustaðal fyrir Rafrænan reikning (EN 16931). Stuðningur opinberra aðila við þessa tækniforskrift felur í sér að skilyrði tilskipunar 2014/55 eru uppfyllt.Við útgáfu og úrvinnslu rafrænna reikninga skal farið eftir viðeigandi lögum og reglugerðum og taka þau fram yfir það semskilgreint er í þessari tækniforskrift. Helstu lög og reglugerðir sem gilda um rafræna reikninga almennt eru eftirfarandi:Lög um bókhald nr. 145/1994Lög um virðisaukaskatt nr. 50/1988Reglugerð um rafræna reikninga, rafrænt bókhald, skeytamiðlun, skeytaþjónustu, geymslu rafrænna gagna og lágmarkskröfur til rafrænna reikninga- og bókhaldskerfa nr. 505/2013.Rafræn reikningum eins og skilgreindur er í þessari tækniforskrift gefur kost á að uppfylla ofangreind lög en þær prófunarreglur sem fylgja staðlinum tryggja það ekki og er útgefandi því ábyrgur fyrir að uppfylla viðeigandi lagalegar kröfur. Í tilvikum þar sem önnur lög, þar sem kröfur geta verið er varðar útgáfu og meðferð rafrænna reikninga, eiga við getur verið aðþessi tækniforskrift gefi ekki kost á að upfylla þær lagakröfur. Í þeim tilvikum er þó mögulegt að útfæra frávik samanber skilgreiningar í Evrópskum staðli um rafræna reikninga.
Hafðu samband í síma 520-7150 varðandi þennan staðal.
Tækniforskrift fyrir rafrænan reikning er gefin út af Staðlaráði Íslands.Tækniforskrift þessi byggir á [Peppol] skilgreiningu á rafrænum reikning [PEPPOL BIS Billing 3.0] sem er afmörkuð innleiðing (CIUS) á Evrópustaðli fyrir rafrænan reikning ÍST EN 16931 sem gefinn er út af Evrópsku Staðlasamtökunum CEN sem Staðlaráð Íslands er aðili að. Tækniforskriftin lýsir uppbyggingu rafræns reiknings eins og íslensk lög og viðskiptahefðir mæla fyrir um og afmarkast við skilgreiningar í [BIS3 Billing] þannig að sé túlkun óljós eða stangast á þá gilda þær skilgreiningar.Tækniforskriftin er ætluð þeim sem vinna við innleiðingu rafrænna reikninga hjá fyrirtækjum sem gefa út slíka reikninga og/eða taka við þeim. Tækniforskriftin gerir ráð fyrir að lesandinn hafi almenna þekkingu á forritun og notkun XML skjala (e. Extensible Markup Language) og grunnþekkingu á UBL skeytastaðlinum.Markmiðið með útgáfu tækniforskriftarinnar er að styðja við innleiðingu rafrænna reikninga hjá litlum jafnt sem stóru