TS 166:2013

Staða:

Gildistaka - 15.10.2013

Íslenskt heiti:

Samræmdar vefþjónustur banka og sparisjóða - Tæknilegar upplýsingar og villuboð

Enskt heiti:

Icelandic Online Banking Web Services - Technical specifications and error messages

Tækninefnd:

ÍST/FUT

ICS flokkur:

3.060, 35.240

Auglýst:

17.10.2013

Umfang (scope):

[ATH. Tækniforskriftin gildir til 15.10.2021.] Tækniforskriftin lýsir þeim þáttum sem sameiginlegir eru öllum samræmdum vefþjónustum banka og sparisjóða við auðkenningu notenda og undirritun skeyta. Þá er einnig að finna lista yfir almenn villuboð og sértæk villuboð hverrar vefþjónustu fyrir sig. Helstu notendum tækniforskriftarinnar má skipta í tvo hópa: Annars vegar er um að ræða hugbúnaðarsérfræðinga hjá bönkum og sparisjóðum sem útfæra munu vefþjónusturnar á móti viðskiptavinum sínum og hinsvegar eru það hugbúnaðarsérfræðingar sem vinna að kerfum sem tengjast bönkunum á kerfisstigi. Uppbygging tækniforskriftarinnar er með þeim hætti að ekki er nauðsynlegt að notast við aðrar tækniforskriftir við notkun þeirra aðgerða sem lýst er. Þannig er til að mynda tæmandi listi yfir öll þau tög sem fram koma í hverri aðgerð fyrir sig, jafnvel þó svo að sömu tög séu einnig nýtt í öðrum þjónustum sem ekki falla innan þessarar tækniforskriftar. Markmiðið er að lesandi geti nýtt sér þær aðgerðir sem lýst er og að hann skilji hlutverk og eðli hverrar aðgerðar fyrir sig ásamt samhengi þeirra í heild sinni. Gengið er út frá því að lesandi hafi tæknilega þekkingu á XML ívafsmáli, vefþjónustum og þeirri tækni sem þær byggja á, enda er tækniforskriftin ekki ætluð sem kennsluefni í notkun vefþjónusta.
Skráðu þig inn til þess að hlaða niður staðli
Menu
Top