TS 164:2013

Staða:

Gildistaka - 15.10.2013

Íslenskt heiti:

Samræmdar vefþjónustur banka og sparisjóða - Yfirlit bankareikninga

Enskt heiti:

Icelandic Online Banking Web Services - Account Statements

Tækninefnd:

ÍST/FUT

ICS flokkur:

3.060, 35.240

Auglýst:

17.10.2013

Umfang (scope):

[ATH. Tækniforskriftin gildir til 15.10.2021.] Tækniforskriftin lýsir hlutmengi af samræmdum vefþjónustum banka og sparisjóða. Hún inniheldur allar þær aðgerðir sem tiltækar eru í yfirlitsþjónustuhlutanum. Vefþjónustan hjúpar aðgerðir úr kerfum bankanna og gerir þær aðgengilegar út á við. Vefþjónustunni er þannig ætlað að veita aðgengi á kerfisstigi og gera viðskiptavinum kleift að tengja kerfi sín beint við kerfi bankanna. Helstu notendum tækniforskriftarinnar má skipta í tvo hópa: Annars vegar er um að ræða hugbúnaðarsérfræðinga hjá bönkum og sparisjóðum sem útfæra munu vefþjónusturnar á móti viðskiptavinum sínum og hinsvegar eru það hugbúnaðarsérfræðingar sem vinna að kerfum sem tengjast bönkunum á kerfisstigi. Þar sem yfirlitsþjónustan býður, eins og nafnið gefur til kynna, upp á yfirlit en ekki fjárhagslegar aðgerðir, má búast við að þau kerfi sem nýti sér þjónustuna séu af ýmsu tagi og ekki hægt að setja undir einn og sama hatt. Sem dæmi um slík kerfi má þó nefna bókhaldskerfi og launakerfi. Uppbygging tækniforskriftarinnar er með þeim hætti að ekki er nauðsynlegt að notast við aðrar tækniforskriftir við notkun þeirra aðgerða sem lýst er. Þannig er til að mynda tæmandi listi yfir öll þau tög sem fram koma í hverri aðgerð fyrir sig, jafnvel þó svo að sömu tög séu einnig nýtt í öðrum þjónustum sem ekki falla innan þessarar tækniforskriftar. Markmiðið er að lesandi geti nýtt sér þær aðgerðir sem lýst er og að hann skilji hlutverk og eðli hverrar aðgerðar fyrir sig ásamt samhengi þeirra í heild sinni. Gengið er út frá því að lesandi hafi tæknilega þekkingu á XML ívafsmáli, vefþjónustum og þeirri tækni sem þær byggja á, enda er tækniforskriftin ekki hugsuð sem kennsluefni í notkun vefþjónusta.
Skráðu þig inn til þess að hlaða niður staðli
Menu
Top