Þessi íslenski staðall kveður á um skipan tákna á lyklaborðum fyrir almenna skrifstofuvinnu og ritvinnslu, sem gerð eru samkvæmt stöðlunum ISO/IEC 9995-1 og ISO/IEC 9995-2. Skal mengi tákna og merking á lyklum vera að lágmarki svo sem tiltekið er í þessum staðli. Stafamengi lyklaborðsins er undirmengi úr ISO/IEC 10646:2010, töflu C0 Controls and Basic Latin, töflu C1 Controls and Latin-1 Supplement, töflu 0300 Combining Diacritical Marks og töflu 20A0, Currency symbols. Ritstafasvæði lyklaborðsins hefur 48 lykla.Sú skipan lyklaborða sem tiltekin er í þessum staðli er ætluð fyrir tölvubúnað, svo sem einmenningstölvur, vinnustöðvar og tölvuútstöðvar við almenna skrifstofuvinnu, ritvinnslu og svipuð verk. Ætlast er til að ritvélar framleiddar fyrir íslenskan markað séu búnar lyklaborðum í samræmi við þennan staðal eftir því sem tæknileg gerð þeirra ræður við. - This Icelandic Standard defines character arrangement on keyboards for common office work and text processing in accordance with