Hvernig geta fyrirtæki og stofnanir tryggt að sjálfbærnimarkmið skili sér í raunverulegum aðgerðum og mælanlegum árangri?
Þetta var viðfangsefni sameiginlegs vefnámskeiðs UN Global Compact Ísland og Fagstaðlaráðs í umhverfis- og loftslagsmálum hjá Staðlaráði Íslands sem fram fór 24. nóvember. Þar var fjallað um nýjan alþjóðlegan staðal, ISO/UNDP 53001:2026, og hvernig hann getur nýst fyrirtækjum og stofnunum við markvissa sjálfbærnivinnu.
Jan Høstrup frá Danish Standards, sem gegndi lykilhlutverki við þróun staðalsins, kynnti tilgang hans og hvernig nýta má stjórnunarkerfisnálgun til að samþætta heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna við stefnumótun og starfsemi fyrirtækja og stofnana.
Staðallinn, sem þróaður var í samstarfi Alþjóðlegu staðlasamtakanna ISO og Þróunaráætlunar Sameinuðu þjóðanna (UNDP), veitir skipulagða umgjörð um sjálfbærnivinnu þar sem áhersla er lögð á skýra ábyrgð, markmiðasetningu, mælingar og stöðugar umbætur.
Auður Hrefna Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri UN Global Compact Ísland, fjallaði um starfsemi samtakanna og hvernig fyrirtæki geta nýtt alþjóðlega þekkingu, verkfæri og samstarf til að efla sjálfbærni í sinni starfsemi.
ISO/UNDP 53001 og UN Global Compact bjóða upp á ólíkar en samverkandi leiðir til að styðja fyrirtæki við ábyrga viðskiptahætti og innleiðingu heimsmarkmiðanna.
Á tímum þegar kröfur um gagnsæi, ábyrgð og sannanlegan árangur í sjálfbærnimálum aukast er mikilvægt að fyrirtæki hafi aðgang að traustum og hagnýtum verkfærum. Sjálfbærni á ekki að vera verkefni til hliðar við reksturinn heldur hluti af því hvernig fyrirtæki eru rekin, ákvarðanir teknar og árangur metinn.
Staðlaráð Íslands þakkar fyrirlesurum, UN Global Compact Ísland og öllum þátttakendum fyrir þátttökuna.
Fyrir þau sem misstu af vefnámskeiðinu, eða vilja rifja upp efni þess, er upptaka af kynningunni nú aðgengileg hér að neðan.