Haustfundur Byggingastaðlaráðs í samstarfi við VFÍ

Haustfundur Byggingastaðlaráðs verður miðvikudaginn 25. nóvember 2026 kl. 11:30-13:00 í Verkfræðingahúsinu, Engjateigi 9, Reykjavík.

Haustfundurinn er haldinn árlega og hefst á stuttri yfirferð um stöðu verkefna og helstu málefni á vettvangi Byggingastaðlaráðs. Kl. 12:00 verða samlokur í boði og þá taka við tvö áhugaverð erindi:

Uppfærsla á ÍST 30 - Almennir útboðs- og samningsskilmálar um verkframkvæmdir
Hildur Georgsdóttir, OR.


Hildur Georgsdóttir frá Orkuveitu Reykjavíkur mun kynna stöðuna á endurskoðun ÍST 30. Vinnan við uppfærslu staðalsins hefur staðið yfir um nokkurt skeið og komið hafa fjölmargir sérfræðingar að þeirri vinnu. Nú styttist í að henni ljúki og því spennandi að fá innsýn í helstu breytingar og hvað þær munu þýða fyrir notendur staðalsins.

Nýja brúin yfir Fossvog
Magnús Arason, Eflu verkfræðistofu.


Magnús Arason frá Eflu verkfræðistofu mun fjalla um Fossvogsbrúna, eitt af stærstu samgönguverkefnum síðustu ára. Margir hafa fylgst með framkvæmdinni og því verður áhugavert að fá nánari innsýn í verkefnið, framgang þess, helstu lausnir og reynsluna af framkvæmdinni hingað til.

Streymt verður frá fundinum og hægt að horfa hér.
Menu
Top