Staðlaráð Íslands hefur nú haldið tvær kynningar á nýrri útgáfu ISO 9001:2026, alþjóðlega staðalsins um gæðastjórnunarkerfi. Annars vegar var um að ræða staðfund og hins vegar vefkynningu þar sem farið var yfir helstu breytingar í staðlinum og hvað þær þýða fyrir fyrirtæki og stofnanir.
Upptaka af vefkynningunni fylgir þessari frétt og er aðgengileg öllum áhugasömum.
ISO 9001 er einn mest notaði stjórnunarstaðall heims og hefur um áratugaskeið verið mikilvægur grunnur að skipulögðu gæðastarfi fyrirtækja og stofnana.
Með nýrri útgáfu staðalsins er leitast við að tryggja að kröfur til gæðastjórnunarkerfa taki mið af breyttu starfsumhverfi, nýjum áskorunum og auknum væntingum til stjórnunar, ábyrgðar og stöðugra umbóta.
Á kynningunum fór Guðrún Ólafsdóttir yfir helstu breytingar og áherslur nýju útgáfunnar og hvernig skipulagsheildir geta undirbúið sig fyrir innleiðingu hennar.
Markmið kynninganna var ekki aðeins að upplýsa þá sem þegar starfa með gæðastjórnunarkerfi heldur einnig að vekja áhuga annarra á því hvernig markviss gæðastjórnun getur stuðlað að betri starfsháttum, aukinni skilvirkni og traustari rekstri.
Gæðastjórnun er ekki eingöngu viðfangsefni gæðastjóra eða þeirra fyrirtækja sem stefna að vottun. Hún snýst fyrst og fremst um að skapa skýra verkferla, tryggja samræmi í starfsemi, læra af reynslunni og vinna stöðugt að umbótum.
ISO 9001 getur því nýst skipulagsheildum af öllum stærðum og gerðum, hvort sem þær starfa í opinberri þjónustu, iðnaði, verslun eða öðrum greinum atvinnulífsins.
Fyrir þau sem ekki áttu þess kost að sækja kynningarnar, eða vilja rifja upp það sem þar kom fram, hefur Staðlaráð Íslands ákveðið að gera upptöku af vefkynningunni aðgengilega.
Í upptökunni er farið yfir helstu breytingar ISO 9001:2026 og þau atriði sem mikilvægt er að hafa í huga við undirbúning og aðlögun gæðastjórnunarkerfa.
Staðlaráð Íslands hvetur alla sem hafa áhuga á gæðastjórnun, umbótastarfi og þróun skipulagsheilda til að kynna sér efni vefkynningarinnar.