Í tilefni af alþjóðlega staðladeginum 14. október 2026
Oft heyrist að við Íslendingar viljum vera leiðandi í nýsköpun, fremst í tækniframförum, til fyrirmyndar í sjálfbærni og meðal þeirra þjóða sem fyrst tileinka sér nýjar lausnir. Við ræðum um gervigreind, orkuskipti, grænan hagvöxt og stafræna umbreytingu eins og framtíðin sé lest sem við hoppum um borð í þegar hún kemur.
Það er einn hængur á þessari hugsun. Á meðan við ræðum framtíðina hér heima er þegar verið að móta hana annars staðar. Í alþjóðlegu samstarfi af ýmsum toga er verið að taka ákvarðanir um þær tæknilegu forsendur sem fyrirtæki, stjórnvöld og samfélög munu byggja á næstu áratugina. Þar er verið að ákveða hvernig við ætlum að meta öryggi og virkni gervigreindar, hvernig við mælum raunverulegan árangur í loftslagsmálum, hvernig ný orkukerfi eiga að vinna saman og hvaða kröfur framtíðarinnar verða gerðar til vara, þjónustu og framleiðslu.
Þó margir haldi að þessar ákvarðanir séu teknar af stjórnmálamönnum er það ekki endilega svo. Þær eru nefnilega að verulegum hluta mótaðar af sérfræðingum, vísindafólki og fulltrúum fyrirtækja og stofnana sem taka þátt í alþjóðlegu staðlastarfi.
Spurningin er því ekki aðeins hvort við ætlum að vera þátttakendur í framtíðinni. Hún snýst ekki síður um hvort við ætlum að hafa áhrif á hvernig hún verður mótuð.
Við Íslendingar höfum lengi verið stolt af því að geta gert stóra hluti þrátt fyrir smæð okkar. Við höfum byggt upp öfluga þekkingu á sviði jarðvarma, sjávarútvegs, endurnýjanlegrar orku og fjölmargra tæknigreina. Íslensk fyrirtæki hafa sýnt að góðar hugmyndir geta orðið að alþjóðlegum lausnum óháð því hvar þær verða til.
En í alþjóðlegu atvinnulífi nægir ekki alltaf að hafa bestu hugmyndina. Lausnin þarf líka að uppfylla kröfur markaðarins, samræmast þeim kerfum sem fyrir eru og njóta trausts þeirra sem eiga að nota hana. Oft ráðast þessar forsendur af alþjóðlegum stöðlum.
Það er ekki nóg að leggja áherslu á að styðja íslenska nýsköpun ef við gleymum að taka með í reikninginn þá umgjörð sem ræður því hvort nýsköpunin kemst á markað. Nýsköpun sem ekki fylgir þeirri umgjörð flýgur ekki háttl
Fyrirtæki sem tekur þátt í mótun alþjóðlegs staðals er ekki aðeins að fylgjast með þróuninni. Það fær tækifæri til að leggja fram þekkingu sína, koma sjónarmiðum sínum á framfæri og öðlast innsýn í þær breytingar sem kunna að verða á markaðnum. Slík þátttaka getur verið verðmæt, ekki síst fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki sem starfa í harðri alþjóðlegri samkeppni.
Þetta er ekki spurning um að íslensk fyrirtæki eigi að ráða ferðinni eða geta mótað staðla eftir eigin hentugleika. Alþjóðlegt staðlastarf byggist á samvinnu og samstöðu ólíkra hagsmunaaðila. En ef íslensk sjónarmið eiga að koma til álita þarf einhver að koma þeim á framfæri.
Fjarvera er líka ákvörðun. Og hún hefur afleiðingar.
Við höfum vanist því að tala um nýsköpun eins og hún snúist fyrst og fremst um frumlegar hugmyndir og tæknilegar uppfinningar. En saga tækninnar sýnir okkur að góðar lausnir duga skammt ef þær geta ekki tengst öðrum lausnum eða ef markaðurinn getur ekki treyst því að þær virki eins og til er ætlast. Hagræðið, tíma-, orku- og fjármagnssparnaðurinn af notkun flutningagáma varð t.d ekki að veruleika fyrr en hagaðilar höfðu sammælst um stærðir, útfærslu, virkni og tæknina á bak við þá.
Hvernig ætlum við til dæmis að nýta möguleika gervigreindar ef við getum ekki metið áhættu hennar með sambærilegum hætti? Hvernig ætlum við að byggja upp hringrásarhagkerfi ef upplýsingar um efni, vörur og endurnýtingu eru ósamræmanlegar milli fyrirtækja og landa? Og hvernig ætlum við að bera saman loftslagsárangur ef hver og einn notar sínar eigin aðferðir við að mæla hann?
Þetta eru ekki aukaatriði sem hægt er að leysa þegar ný tækni hefur náð fótfestu. Í mörgum tilfellum eru þau forsenda þess að tæknin geti yfirhöfuð náð útbreiðslu.
Staðlar eru þess vegna ekki aðeins afurð tækniframfara. Þeir geta verið forsenda þeirra.
Þegar við skiljum þetta breytist líka umræðan um staðlastarf. Það er ekki lengur jaðarstarfsemi sem snýst um tæknilegar skilgreiningar, skjöl og þreytandi kvaðir. Það verður hluti af þeirri innviðauppbyggingu sem nýsköpun, samkeppnishæfni og samfélagsleg framþróun hvílir á.
Yfirskrift alþjóðlega staðladagsins í ár tengist heimsmarkmiði Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra orku fyrir alla. Það er vel við hæfi að við Íslendingar horfum sérstaklega til þess málaflokks.
Við höfum á margan hátt einstaka stöðu þegar kemur að nýtingu endurnýjanlegra orkugjafa. En orkuframtíð okkar verður ekki eingöngu ákvörðuð af því hversu mikla orku við getum framleitt eða hvaða virkjanakosti við veljum. Hún mun líka ráðast af því hversu vel við nýtum orkuna, hvernig ný tækni tengist núverandi innviðum og hvort kerfin okkar verði nægilega örugg, sveigjanleg og áreiðanleg.
Framtíð orkukerfa byggist á samspili margra þátta. Raforkuframleiðsla, dreifikerfi, geymslutækni, snjallstýring, orkunýtni og nýir orkugjafar þurfa að geta unnið saman. Því flóknari sem þessi kerfi verða, þeim mun mikilvægari verða sameiginleg tæknileg viðmið.
Á þessu sviði eigum við Íslendingar mikla þekkingu sem getur nýst langt út fyrir landsteinana. En við þurfum líka að tryggja að sú þekking skili sér inn í alþjóðlega vinnu þar sem framtíðarlausnir eru mótaðar.
Það er ekki nóg að vera góður í að nýta tækni. Við eigum einnig að hafa metnað til að taka þátt í að skilgreina hvernig hún þróast.
Ég tel að við þurfum að endurskoða ákveðna rótgróna hugsun í íslensku samfélagi. Við höfum um langt skeið litið á staðla fyrst og fremst sem eitthvað sem fyrirtæki þurfa að uppfylla, kaupa eða innleiða. Sem kröfur sem koma utan frá og þarf að bregðast við.
Sú sýn er bæði takmörkuð og úrelt.
Staðlastarf er líka vettvangur fyrir áhrif, þekkingarsköpun og stefnumótandi þátttöku. Það er leið til að koma íslenskri sérþekkingu á framfæri og um leið læra af þeirri þróun sem á sér stað annars staðar. Það er vettvangur þar sem samkeppnisaðilar, vísindafólk, stjórnvöld og aðrir hagsmunaaðilar geta sameinast um lausnir á viðfangsefnum sem enginn einn aðili getur leyst sjálfur.
Þess vegna þarf þátttaka í staðlastarfi að fá meira vægi í umræðu um samkeppnishæfni Íslands, nýsköpun og framtíðaruppbyggingu atvinnulífsins. Hún ætti að vera hluti af langtímahugsun fyrirtækja, rannsókna- og þróunarstarfi og stefnumótun stjórnvalda. Þannig ná stærri þjóðir samkeppnisforskoti.
Við þurfum ekki að taka þátt í öllu. Það væri hvorki raunhæft né skynsamlegt fyrir lítið samfélag. En við eigum að vera meðvituð um á hvaða sviðum við höfum sérstaka þekkingu, hvar íslenskir hagsmunir eru miklir og hvar þátttaka okkar getur skipt raunverulegu máli.
Og þar eigum við að mæta.
Alþjóðlegi staðladagurinn er tilefni til að þakka þeim fjölmörgu sérfræðingum sem leggja sitt af mörkum til staðlastarfs. Án þeirra væri sú alþjóðlega samvinna sem við treystum á daglega mun erfiðari. Ég vil nota tækifærið til að færa öllum þeim sem taka þátt í innlendu og alþjóðlegu staðlastarfi fyrir Íslands hönd innilegar þakkir.
En ég vil líka nota daginn til að beina spurningu til íslensks atvinnulífs, stjórnvalda og þeirra sem vinna að nýsköpun og rannsóknum.
Ef við viljum að Ísland verði í fremstu röð í nýsköpun, sjálfbærni og tækniframförum, hvers vegna ættum við þá að láta öðrum eftir að móta þær sameiginlegu forsendur sem framtíðin byggist á?
Við getum ekki vænst þess að íslensk sjónarmið rati sjálfkrafa inn í alþjóðlegar ákvarðanir. Það gerist með þátttöku, þekkingu og vilja til samstarfs.
Framtíðin verður ekki mótuð á einum stað og hún verður ekki mótuð af einum aðila. En hún verður mótuð af þeim sem taka þátt.
Spurningin er hvort við ætlum að sitja við borðið eða bíða eftir að niðurstöðurnar berist okkur.
Helga Sigrún Harðardóttir
framkvæmdastjóri Staðlaráðs Íslands