Ársfundur Alþjóðlegu staðlasamtakanna ISO fór fram í París dagana 28. september til 2. október undir yfirskriftinni *Building trust in a changing world* – að byggja upp traust í breyttum heimi. Þúsundir þátttakenda úr staðlastarfi, atvinnulífi, stjórnvöldum og alþjóðastofnunum tóku þátt í fundinum, ýmist í París eða í streymi. Umræðan snerist meðal annars um gervigreind, loftslagsaðlögun, sjálfbærni, alþjóðaviðskipti og stafræna framtíð staðla. Rauði þráðurinn var þó skýr: í heimi þar sem tæknibreytingar eru hraðar, aðfangakeðjur flóknar og óvissa eykst þarf traust í síauknum mæli að vera hægt að byggja á sameiginlegum og sannreynanlegum viðmiðum.
Ein veigamesta formlega niðurstaða fundarins var samþykkt svokallaðrar Paris Statement, Parísaryfirlýsingar ISO. Með henni staðfestu aðildarlönd ISO aukna áherslu á hlutverk alþjóðlegra staðla við loftslagsaðlögun, uppbyggingu viðnámsþols og vernd náttúru.
Yfirlýsingin byggir áfram á loftslagsskuldbindingu ISO frá árinu 2021 en færir áhersluna jafnframt skýrar yfir á aðlögun að afleiðingum loftslagsbreytinga, viðnámsþol vistkerfa og náttúruvernd. Bent er á að loftslagsbreytingar, hnignun líffræðilegrar fjölbreytni, vatnsskortur, fæðuöryggi og röskun aðfangakeðja séu samtengd viðfangsefni og að alþjóðlegir staðlar geti hjálpað stjórnvöldum, fyrirtækjum og samfélögum að færa markmið yfir í framkvæmd.
Loftslagsaðlögun var einnig áberandi í dagskrá fundarins. Meðal annars var fjallað um hvernig staðlar geta hjálpað sveitarfélögum og samfélögum að greina áhættu, forgangsraða aðgerðum og byggja upp trúverðugar aðlögunaráætlanir. Þar var sérstaklega vísað til ISO 14092:2026 um aðlögunaráætlanir sveitarfélaga og samfélaga.
Strax á fyrsta degi ársfundarins kynntu ISO og Þróunaráætlun Sameinuðu þjóðanna (UNDP), nýjan ISO/UNDP 53001:2026 staðal. Þetta er fyrsti alþjóðlegi stjórnunarkerfisstaðallinn sem er sérstaklega ætlaður til að hjálpa fyrirtækjum, stjórnvöldum og öðrum skipulagsheildum að samþætta heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna inn í stefnu, stjórnun og daglegan rekstur.
Staðallinn á að brúa bilið milli góðra fyrirheita og mælanlegra aðgerða. Hann veitir ramma til að skilgreina forgangsmál, setja markmið, fylgjast með árangri og sýna fram á ábyrgð og stöðugar umbætur. Hann er jafnframt hannaður þannig að hægt verði að nota grunnuppbyggingu hans áfram þegar ný alþjóðleg sjálfbærnimarkmið taka við af núverandi heimsmarkmiðum eftir 2030. ISO/UNDP 53001 getur einnig fallið að öðrum stjórnunarkerfisstöðlum á borð við ISO 9001 og ISO 14001.
Gervigreind var eitt af stóru viðfangsefnum fundarins. Umræðan snerist ekki aðeins um nýja tæknilega möguleika heldur ekki síður um traust, ábyrgð og mannlegt eftirlit þegar gervigreindarkerfi taka sífellt stærri þátt í ákvarðanatöku fyrirtækja og samfélaga.
Meðal þróunar sem rædd var eru sérhæfð gervigreindarlíkön og svokallaðir AI-agents, sjálfstæðari kerfi sem geta framkvæmt verkefni og tekið ákvarðanir með minni beinni íhlutun fólks. Eftir því sem slík kerfi verða öflugri verður spurningin um ábyrgð mikilvægari: hvaða ákvarðanir á áfram að vera á höndum fólks, hvernig er hægt að sannreyna niðurstöður og hvernig byggjum við upp traust á kerfum sem verða sífellt sjálfvirkari?
Alþjóðlegir staðlar geta þar gegnt lykilhlutverki með því að skapa sameiginleg viðmið um stjórnun, gagnsæi og ábyrgð.
Netöryggi var einnig rætt út frá víðara samhengi en eingöngu tæknilegum vörnum. Eftir því sem samfélög og viðskipti færast meira yfir í stafrænt umhverfi verður netöryggi jafnframt spurning um traust, stjórnarhætti, ábyrgð og hvernig upplýsingakerfi samfélagsins eru byggð upp.
Stafrænir vörupassar, eða Digital Product Passports, fengu mikið vægi á fundinum. Með stafrænum vörupassa er hægt að varðveita og miðla upplýsingum um uppruna, innihald, framleiðsluferil, viðgerðir, endurnýtingu og önnur atriði sem tengjast vöru yfir allan líftíma hennar.
Til þess að slík kerfi virki milli landa og atvinnugreina þurfa upplýsingar þó að vera sambærilegar og tölvukerfi að geta talað saman. ISO og IEC hafa því komið á fót sameiginlegri tækninefnd, ISO/IEC JTC 5, sem vinnur að sameiginlegum alþjóðlegum ramma fyrir stafræna vörupassa. Markmiðið er að skapa grundvöll fyrir það að áreiðanleg gögn um vörur geti ferðast milli kerfa, atvinnugreina og landamæra án þess að merking þeirra eða trúverðugleiki tapist.
Þróunin tengist bæði stafrænum viðskiptum og hringrásarhagkerfinu. Ef upplýsingar um vörur eiga að nýtast við endurnotkun, viðhald, endurvinnslu, sjálfbærnimat og eftirlit þarf að vera sameiginlegur skilningur á því hvað upplýsingarnar merkja og hvernig þær eru settar fram.
Ein athyglisverðasta þróunin sem sýnd var í París snýr að sjálfum stöðlunum. ISO kynnti formlega fyrstu útgáfu af svokölluðu Digitally Enhanced Content, þar sem staðallinn verður meira en hefðbundið PDF-skjal.
Í stað þess að fletta löngu skjali frá upphafi til enda geta notendur unnið með staðla í skipulögðu stafrænu viðmóti, fundið ákvæði hraðar og nýtt efnið á gagnvirkari hátt. Fyrstu stafrænt auðguðu staðlarnir urðu aðgengilegir 1. október og þar á meðal eru meðal annars ISO 9001:2026 og ISO 14001:2026. ISO lýsir þróuninni sem skrefi frá kyrrstæðum skjölum yfir í efni sem er betur undirbúið fyrir leit, stafræna vinnslu og framtíðarþjónustu.
Samhliða þessari þróun fór fram umfangsmikil umræða meðal aðildarlanda ISO um framtíðarviðskiptamódel samtakanna. Svokölluð Business Model Review snýr að því hvernig ISO skapar og miðlar verðmætum þegar þarfir notenda breytast og notkun staðla verður í auknum mæli stafræn. Þetta getur haft veruleg áhrif á það hvernig staðlar verða aðgengilegir, leyfðir til notkunar og samþættir inn í stafræna þjónustu á næstu árum.
Ný útgáfa ISO 9001:2026, eins útbreiddasta stjórnunarkerfisstaðals heims, var jafnframt í sviðsljósinu. Á ársfundinum var sérstaklega rætt hvernig gæðastjórnun getur hjálpað fyrirtækjum að byggja upp traust á tímum hraðra breytinga.
Áherslan var á að gæði snúist ekki eingöngu um vöruna eða þjónustuna sjálfa heldur um það hvort hægt sé að treysta kerfinu á bak við hana. Þar skipta forysta, menning, stöðugar umbætur og ábyrgð miklu máli. Gervigreind bætir síðan nýrri vídd við þessa mynd þar sem fyrirtæki þurfa að byggja viðeigandi varnir og eftirlit inn í ferla án þess að mannleg ábyrgð hverfi.
Staðlar sem grunnur að alþjóðaviðskiptum voru annað meginstef ársfundarins. Fulltrúar Alþjóðabankans og Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar, WTO, fjölluðu meðal annars um hvernig aukin landfræðileg spenna, breytingar á aðfangakeðjum og vaxandi efnahagsleg sundrung geta aukið óvissu fyrir fyrirtæki.
Sameiginlegir staðlar geta þar skapað fyrirsjáanleika. Þegar fyrirtæki í mismunandi löndum vinna eftir sömu skilgreiningum, kröfum og prófunaraðferðum verður auðveldara að eiga viðskipti þvert á landamæri og tengja saman aðfangakeðjur. Þetta verður enn mikilvægara eftir því sem alþjóðaviðskipti verða stafrænnri og upplýsingaflæði verður jafn mikilvægt og sjálft vöruflæðið.
Náttúruvernd og líffræðileg fjölbreytni skipuðu einnig stóran sess. Þar var meðal annars bent á nauðsyn sameiginlegra mælikvarða svo fyrirtæki, stjórnvöld og fjárfestar geti metið á sambærilegan hátt hvort aðgerðir séu raunverulega að bæta stöðu náttúrunnar.
Í því samhengi var ISO 17298:2025 um samþættingu líffræðilegrar fjölbreytni í stefnu og starfsemi skipulagsheilda dreginn sérstaklega fram. Með stöðlum sem þessum færist náttúra í auknum mæli frá því að vera jaðarmál í samfélagsábyrgð fyrirtækja yfir í að verða hluti af stefnumótun, áhættustýringu og fjárfestingarákvörðunum.
ISO lagði einnig sýnilega áherslu á þátttöku ungs fagfólks. Sérstök dagskrá var fyrir unga sérfræðinga á fundinum og fulltrúar þeirra tóku síðan þátt í umræðum á sjálfum aðalfundinum um framtíð alþjóðlegs staðlastarfs.
Markmiðið er ekki aðeins að fjölga ungu fólki í nefndum heldur að tryggja að sjónarmið kynslóðarinnar sem mun starfa með og þróa staðla næstu áratugina fái raunverulegt vægi þegar framtíð staðlastarfsins er mótuð.
Þegar litið er yfir ársfundinn í heild má greina skýra þróun. Hlutverk alþjóðlegra staðla er að breikka. Þeir snúast ekki lengur aðeins um tæknilegar forskriftir, mál og prófunaraðferðir heldur eru þeir í vaxandi mæli notaðir til að skapa traust í kerfum sem eru flókin, alþjóðleg og sífellt stafrænni.
Hvort sem um er að ræða gervigreind, loftslagsaðlögun, sjálfbærni, stafræna vörupassa eða alþjóðleg viðskipti er áskorunin í grunninn svipuð: hvernig geta einstaklingar, fyrirtæki og stjórnvöld treyst upplýsingum, ferlum og kerfum sem þau reiða sig á?
Skilaboðin frá París voru að alþjóðlegir staðlar verði mikilvægur hluti af svarinu. Staðlar skapa sameiginlegt tungumál þar sem ólíkir aðilar geta unnið saman, gera kröfur og væntingar sýnilegar og skapa grundvöll fyrir því að hægt sé að sýna fram á að loforð séu efnd.
Í breyttum heimi verður traust ekki sjálfgefið. Það þarf að byggja það – og þar mun staðlastarf áfram gegna lykilhlutverki.