Kolefnishlutleysi byrjar á samdrætti, ekki jöfnun - Nýr ISO staðall

Nýr alþjóðlegur staðall um kolefnishlutleysi, ISO 14068:2026, var gefinn út 11. september. Hann leggur áherslu á að fyrirtæki og stofnanir dragi fyrst úr eigin losun og auki bindingu innan virðiskeðjunnar áður en kolefnisjöfnun er notuð vegna þeirrar losunar sem eftir stendur.

Staðallinn veitir sameiginlegt verklag fyrir að mæla kolefnisspor, draga úr því og sýna fram á kolefnishlutleysi. Hann getur meðal annars átt við um fyrirtæki, sveitarfélög, fjármálastofnanir, vörur, þjónustu, byggingar og viðburði.

Kjarninn er skýr forgangsröðun. Fyrst þarf að afmarka hvað fullyrðingin um kolefnishlutleysi nær yfir og mæla losunina. Síðan á að draga úr beinni og óbeinni losun og efla bindingu innan virðiskeðjunnar. Kolefnisjöfnun kemur á eftir og tekur aðeins til eftirstandandi losunar.

Íslensk vinna brúaði bilið

Staðlaráð Íslands gaf árið 2022 út tækniforskriftina ÍST TS 92:2022 - Kolefnisjöfnun: Kröfur með leiðbeiningum. Markmiðið var að skapa traustari umgjörð um kolefnisjöfnun á Íslandi á meðan alþjóðlegt viðmið um kolefnishlutleysi var enn í vinnslu.

Forskriftin byggði á stöðlum ÍST EN ISO 14064 og náði til tveggja hliða kolefnismarkaðarins. Annars vegar setti hún kröfur fyrir skipulagsheildir sem vildu mæla losun, draga úr henni og jafna óhjákvæmilegar eftirstöðvar. Hins vegar fjallaði hún um loftslagsverkefni sem mynda kolefniseiningar, meðal annars um viðbót, varanleika, skráningu, útgáfu eininga og óháða staðfestingu.

Íslenska tækniforskriftin hefur nú runnið sitt skeið. ISO 14068:2026 tekur ekki formlega við af henni sem beinn arftaki, en nýi staðallinn veitir nú alþjóðlegt viðmið um þann hluta sem snýr að því að ná og sýna fram á kolefnishlutleysi. Fyrir verkefni sem framleiða kolefniseiningar þarf áfram viðeigandi kröfur um mælingar, viðbót, varanleika, skráningu og sannprófun.

Bæði skjölin byggja á sömu mikilvægu meginreglunni: kaup á kolefniseiningum koma ekki í stað raunverulegs samdráttar. ÍST TS 92 sagði skýrt að skipulagsheildir ættu fyrst að draga úr eigin losun. ISO 14068 styrkir þessa forgangsröðun á alþjóðlegum vettvangi.

Fyrir íslensk fyrirtæki getur sameiginleg alþjóðleg aðferðafræði skipt máli í útflutningi, innkaupum og samskiptum við fjárfesta og viðskiptavini. Hún auðveldar einnig innkaupaaðilum að spyrja hvað liggi raunverulega að baki fullyrðingu um kolefnishlutleysi: Hvað var mælt? Hvaða samdráttur náðist? Hvaða losun stendur eftir og hvernig var hún jöfnuð?

ISO 14068 er ekki sjálfkrafa vottun, lagaskylda eða sönnun þess að starfsemi valdi engri losun. Hann veitir hins vegar sameiginlegt verklag sem getur gert fullyrðingar um kolefnishlutleysi skýrari og trúverðugri. Fyrst mæla, síðan minnka og að lokum jafna það sem raunverulega stendur eftir.

Menu
Top