Fjölbreytt námskeið um staðla, gæði og sjálfbærni í vetur

Staðlar eru ekki aðeins skjöl sem liggja uppi í hillu. Þeir eru verkfæri sem nýtast á hverjum degi við stjórnun, hönnun, öryggi, sjálfbærni og þróun fyrirtækja og stofnana. Í vetur býður Endurmenntun Háskóla Íslands upp á fjölbreytt námskeið þar sem staðlar og notkun þeirra koma með einum eða öðrum hætti við sögu.

Staðlaráð Íslands er í samstarfi við Endurmenntun HÍ um þrjú námskeið á komandi misserum. Auk þeirra viljum við vekja athygli á tveimur öðrum námskeiðum Endurmenntunar þar sem staðlar og stöðluð aðferðafræði gegna mikilvægu hlutverki.

Gæðastjórnun – frá áætlun til árangurs

1. október – 6. nóvember 2026

Hagnýtt og ítarlegt námskeið um gæðastjórnun og hvernig hún getur styrkt rekstur, bætt ferla og dregið úr sóun. Fjallað verður meðal annars um kröfur fyrirtækja, viðskiptavina og regluverks, ISO-staðla og hvernig gæðastjórnun tengist mannauðsmálum, öryggis- og umhverfismálum, breytingastjórnun og verkefnastjórnun. Námskeiðið byggir á raunverulegum dæmum úr atvinnulífinu og er ætlað að gera þátttakendum kleift að nýta þekkinguna beint í eigin starfsemi. Námskeiðið er haldið í samstarfi Endurmenntunar HÍ og Staðlaráðs Íslands.

Nánar um Gæðastjórnun – frá áætlun til árangurs

CE-merkingar véla

14.–15. október 2026

CE-merkingar eru lykilatriði fyrir fyrirtæki sem framleiða, flytja inn eða markaðssetja vélar á Evrópska efnahagssvæðinu. Á námskeiðinu verður farið yfir helstu kröfur um CE-merkingar, ábyrgð framleiðenda og innflytjenda, vélatilskipunina og nýja reglugerð um vélar, auk samræmismats, áhættumats, tæknigagna og notkunar staðla. Námskeiðið hentar meðal annars framleiðendum, hönnuðum, verkfræðingum og innflytjendum og er haldið í samstarfi Endurmenntunar HÍ og Staðlaráðs Íslands.

Nánar um CE-merkingar véla

Staðlar og sjálfbærni – verðmætasköpun til framtíðar

13. nóvember 2026

Hvernig geta alþjóðlegir staðlar stutt við sjálfbæra þróun og um leið skapað verðmæti fyrir fyrirtæki og stofnanir? Á námskeiðinu verður farið yfir hvernig staðlar geta aukið gæði, öryggi og gagnsæi og skapað sameiginlegan ramma fyrir meðal annars vistvæna hönnun, ábyrga stjórnarhætti og loftslagsaðgerðir. Áhersla verður lögð á raunveruleg dæmi úr íslensku atvinnulífi og hvernig þátttakendur geta nýtt staðla sem hagnýt verkfæri í eigin starfsemi. Námskeiðið er haldið í samstarfi Endurmenntunar HÍ og Staðlaráðs Íslands.

Nánar um Staðla og sjálfbærni – verðmætasköpun til framtíðar

Fleiri staðlatengd námskeið

Þótt eftirfarandi námskeið séu ekki haldin í samstarfi við Staðlaráð Íslands tengjast viðfangsefni þeirra stöðlum og stöðluðum aðferðum með skýrum hætti og geta því verið áhugaverð fyrir þá sem starfa með stjórnun, vinnuvernd, sjálfbærni og mannvirki.

Vistferilsgreining og kolefnisspor bygginga

8. október 2026

Á námskeiðinu læra þátttakendur að framkvæma einfalda vistferilsgreiningu (LCA) og meta kolefnisspor bygginga. Farið verður yfir aðferðafræði, nauðsynleg gögn og hugbúnað og þátttakendur fá tækifæri til að setja upp vistferilsgreiningu fyrir einfalda byggingu. Námskeiðið tengist jafnframt kröfum byggingarreglugerðar um mat á kolefnisspori bygginga og hentar meðal annars arkitektum, verkfræðingum, verktökum, ráðgjöfum og verkkaupum.

Nánar um Vistferilsgreiningu og kolefnisspor bygginga

Líðan, heilsa og öryggi starfsfólks

12. nóvember 2026

Góður vinnustaður snýst ekki eingöngu um ferla og árangur heldur einnig fólkið sem þar starfar. Á námskeiðinu er líðan, heilsa og öryggi starfsfólks skoðað út frá fræðum gæðastjórnunar og vinnuverndar. Fjallað verður um félagslega og sálræna þætti, vinnuaðstöðu, hæfni starfsfólks og hvernig skapa má góða og örugga vinnustaðamenningu. Námskeiðið hentar sérstaklega stjórnendum, gæðastjórum, öryggisstjórum og mannauðsstjórum.

Nánar um Líðan, heilsu og öryggi starfsfólks

Þekking sem nýtist í framkvæmd

Sameiginlegur þráður námskeiðanna er að færa þekkingu nær daglegum verkefnum fyrirtækja og stofnana. Staðlar skapa sameiginlegt tungumál, miðla þekkingu og reynslu og geta hjálpað skipulagsheildum að takast á við sífellt fjölbreyttari kröfur um gæði, öryggi, sjálfbærni og ábyrgan rekstur.

Við hvetjum áhugasama til að kynna sér námskeiðin og skrá sig tímanlega hjá Endurmenntun Háskóla Íslands.

Menu
Top