Nýjar stílabækur, yddaðir blýantar og nestisbox merkja aðeins eitt: Skólarnir eru að byrja á ný. En í venjulegri skólatösku og skólastofu leynast fleiri staðlar en flesta grunar.
Tökum A4-blaðið. Stærðin er ekki tilviljun. Pappírsstærðirnar í A-röðinni eru þannig skipulagðar að þegar A4-blað er skorið í tvennt verða til tvö A5-blöð með sömu lögun. Það auðveldar prentun, ljósritun, geymslu og hönnun og hjálpar til við að nýta pappírinn betur.
Sama hugsun fylgir börnunum áfram inn í skólastofuna. Evrópskir staðlar setja meðal annars viðmið um stærðir og öryggi skólaborða og stóla, lýsingu í kennslustofum og styrk ritflata. Markmiðið er að aðstaðan henti börnum á ólíkum aldri og styðji við öruggt námsumhverfi.
Í frímínútum og íþróttum koma aðrir staðlar við sögu. Þeir fjalla meðal annars um höggdeyfingu í íþróttadýnum, öryggi róla og rennibrauta og kröfur til barnareiðhjóla. Jafnvel nestisbox og fingramálning falla undir viðmið sem snúa að efnum og öryggi.
Börnin þurfa sem betur fer ekki að þekkja neitt af þessu. Þau þurfa bara stól sem passar, góða birtu, öruggt leiktæki og nestisbox sem þolir skóladaginn.
Þannig eru staðlar oftast: ósýnilegir þegar allt gengur vel, en samt með í för frá fyrsta skóladegi.