Græn og stafræn umbreyting krefst nánara samstarfs þvert á landamæri. Norðurlöndin hafa nú tekið höndum saman um sameiginlegt frumkvæði til að efla notkun staðla sem stefnumótandi verkfæris til að umbreyta þekkingu í lausnir sem virka um allt svæðið, sem og á evrópskum og alþjóðlegum vettvangi.
Frumkvæðið The Nordic Region Sets the Standard er stutt af Norrænu ráðherranefndinni og sameinar staðlasamtök Danmerkur, Finnlands, Íslands, Noregs og Svíþjóðar. Markmiðið er að efla norrænt samstarf og auka notkun staðla á sviði nýsköpunar, sjálfbærni og nýrra lausna. Með nánara samstarfi leitast Norðurlöndin við að skapa samræmdari og skilvirkari nálgun að grænni og stafrænni umbreytingu.
„Staðlar eru öflugt tæki í þróun samfélagsins. Þeir stuðla að nýsköpun og ryðja brautina fyrir nýja tækni, ekki síst í grænu umbreytingunni. Nánara norrænt samstarf mun styrkja samhæfingu og auka áhrifin um allt svæðið,“ segir Dan Koivulaakso, sviðsstjóri vaxtar og loftslags hjá Norrænu ráðherranefndinni.
Í gegnum verkefnið munu norrænu staðlasamtökin vinna saman að því að:
Verkefnið beinist að lykilsviðum sem móta framtíðina, svo sem hringrásarhagkerfi, stafrænum lausnum og sjálfbærari nýtingu auðlinda. Sérstök áhersla verður lögð á gervigreind (AI), netöryggi og skammtatækni auk þróunar í málma- og steinefnageiranum.
Með því að efla samstarf og skapa sameiginlegar nálganir mun frumkvæðið styðja skilvirkari innleiðingu nýrrar tækni, stuðla að nýskapandi lausnum, styrkja virðiskeðjur og bæta starfsskilyrði norrænna fyrirtækja og stjórnvalda.
"Með því að styrkja norrænt samstarf um stöðlun getum við umbreytt sameiginlegri þekkingu í hagnýtar lausnir sem styðja sjálfbæra þróun og nýsköpun. Þetta framtak eflir samkeppnishæfni atvinnulífs á Norðurlöndunum með því að auðvelda þróun, skölun og innleiðingu lausna", segir Helga Sigrún Harðardóttir, framkvæmdastjóri hjá Staðlaráði Íslands.
Verkefnið mun einnig stuðla að aukinni þekkingu og þátttöku í staðlastarfi um öll Norðurlönd, bæði meðal sérfræðinga og ungs fagfólks á nýjum sviðum.
The Nordic Region Sets the Standard er norrænt samstarfsverkefni á sviði staðlastarfs sem nýtur stuðnings Norrænu ráðherranefndarinnar. Verkefnið sameinar staðlasamtök Danmerkur, Finnlands, Íslands, Noregs og Svíþjóðar.
Markmið verkefnisins er að efla norrænt samstarf og stuðla að stefnumótandi notkun staðla á sviði sjálfbærni, samkeppnishæfni og grænnar og stafrænnar umbreytingar.