Aðalfundur Fagstaðlaráðs í umhverfis- og loftslagsmálum 2026

Aðalfundur Fagstaðlaráðs í umhverfis- og loftslagsmálum (FUM) verður haldinn fimmtudaginn 30. apríl næstkomandi kl. 11:00–13:00 í húsakynnum Verkís verkfræðistofu að Ofanleiti 2.

Skráning hér

Aðalfundur ráðsins er mikilvægur vettvangur þar sem stefna er mótuð, forgangsröðun ákveðin og sameiginleg sýn skerpist. Þar koma saman ólík sjónarmið úr atvinnulífi og fagumhverfi, með það sameiginlega markmið að efla staðlastarf sem styður við sjálfbæra þróun og trúverðuga framþróun í loftslagsmálum.

Á fundinum verður farið yfir starfsemi liðins árs, fjallað um helstu áskoranir fram undan og lagður grunnur að næstu skrefum í starfi ráðsins. Sérstök áhersla verður lögð á hlutverk fagráðsins sem leiðandi afl í þróun staðla sem hafa raunveruleg áhrif á samfélag og atvinnulíf.

Kosið verður í öll embætti ráðsins á fundinum. Þátttaka í aðalfundi er því ekki aðeins formlegt atriði, heldur raunverulegt tækifæri til að hafa áhrif á stefnu, áherslur og styrk ráðsins til framtíðar.

Á dagskrá fundarins eru meðal annars skýrsla stjórnar, fjárhagsyfirlit, kynning frá Katla Carbon og umræður um starfsemi og framtíðarsýn ráðsins, auk stjórnarkosninga og annarra mála.

Fundargestum verður boðinn léttur hádegisverður.

Öll sem starfa á sviði umhverfis- og loftslagsmála eru hvött til að taka þátt og leggja sitt af mörkum til að móta þá umgjörð sem framtíðin krefst.

Menu
Top