Næsta kynslóð Þolhönnunarstaðla væntanleg

 

Ný kynslóð Þolhönnunarstaðla (e. Second-generation Eurocodes) er í vinnslu þessi misserin. Stór hluti staðlanna eru þegar tilbúinn en áætlað er að vinnu við þá sem eftir eru ljúki 2027. Á Íslandi stendur einnig yfir vinna við gerð þjóðarviðauka við þessa staðla og stefnt er að því að staðfesta alla staðlana og þjóðarviðauka við þá í byrjun árs 2028. Þangað til verður fyrsta kynslóð Þolhönnunarstaðlanna auk íslenskra þjóðarviðauka áfram í gildi. Efni annarrar kynslóðar Þolhönnunarstaðla verður gert aðgengilegt (við köllum þá forstaðla) fram að opinberri og endanlegri útgáfu 2028.

 

Í samræmi við framkvæmd annarra evrópskra staðlasamtaka hefur Staðlaráð Íslands ákveðið að gefa út alla Þolhönnunarstaðlana, ásamt viðeigandi þjóðarviðaukum (e. NA – national annexes), á sama tíma, í upphafi árs 2028.

Fyrstu kynslóðar Þolhönnunarstaðlar og þjóðarviðaukar við þá, verða áfram í gildi sem íslenskir staðlar þar til önnur kynslóð Þolhönnunarstaðla og þjóðarviðauka við þá tekur gildi.
Ákvörðunin um að gefa Þolhönnunarstaðlana út samhliða þjóðarviðaukunum og gera forstaðla aðgengilega fyrr, var tekin eftir samráð við hagsmunaaðila í atvinnulífinu og að frumkvæði annarra staðlasamtaka.

Fram að heildarútgáfu annarrar kynslóðar Þolhönnunarstaðla árið 2028 verður efni þeirra gert aðgengilegt sem íslenskir forstaðlar. Þessir forstaðlar eru gefnir út til að veita atvinnulífinu tækifæri til að kynna sér nýtt efni.

Vinna við aðra kynslóð Þolhönnunarstaðla hófst árið 2012 að beiðni framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Markmiðið er að bæta núverandi staðla, víkka út umfang þeirra og auka notagildi.

Helstu breytingar eru meðal annars:

• Uppfærslur byggðar á nýjustu rannsóknum og aðferðum
• Fækkun á fjölda greina í þjóðarviðaukum
• Ný ákvæði um mat, endurnýtingu og endurbætur á núverandi mannvirkjum
• Bætt ákvæði um áreiðanleika og viðnámsþol
• Þrír nýir Þolhönnunarstaðlar fyrir gler

Nánari upplýsingar:

Upplýsingar um aðra kynslóð þolhönnunarstaðla frá Evrópusambandinu

• Tækninefndin CEN/TC 250, hefur framleitt myndbandsseríuna "Eurocodes evolution explained" sem tekur á lykilspurningum og greinir frá þróun annarrar kynslóðar Þolhönnunarstaðla

• Myndbönd sem fjalla um það sem er nýtt: 2023 var haldin ráðstefna þar sem kynntar voru nýjungar í hverjum hluta Þolhönnunarstaðlanna., Hér má finna upptökur frá ráðstefnunni. 

Menu
Top