Fræðslufundur BSTR og VFÍ - Upptaka

Varnir mikilvægra innviða - Varnargarðar á Reykjanesi.

Lágmörkun byggingargalla og CE-merkingar

Byggingarstaðlaráð og Verkfræðingafélagið stóðu fyrir opnum kynningar- og fræðslufundi í Verkfræðingahúsi, Engjateigi 9. Fundurinn var haldinn þriðjudaginn 7. maí 2024. Streymt var frá fundinum og má nálgast upptöku af hinum hér að neðan.

Dagskrá:

Varnir mikilvægra innviða – Varnargarðar á Reykjanesi

Ari Guðmundsson byggingarverkfræðingur hjá Verkís fjallar um aðdraganda að varnaraðgerðum á Reykjanesi sem hófust fyrst 2021. Farið verður yfir notkun á hraunflæðihermunum, hönnun og útfærslu á varnaraðgerðum við Svartsengi og Grindavík. Þá verður farið yfir stöðu á verklegum framkvæmdum við varnargarðana.

Lágmörkun byggingargalla og CE merkingar

Gústaf A. Hermannsson og Þórunn Sigurðardóttir hjá HMS munu segja frá vinnu við að safna upplýsingum um byggingargalla í mannvirkjum og hvernig hægt verði að nýta þær upplýsingar til þess að lágmarka byggingargalla í framtíðinni. Hluti af því er m.a. fræðsla um notkun CE merkinga byggingarvara og fylgiskjala þeirra.

 


Varnir innviða - Lágmörkun byggingagalla og CE merkingar from VFÍ on Vimeo.

Menu
Top