Með samningi við Endurmenntun Háskóla Íslands (EHÍ) á haustmánuðum 2021 hefur EHÍ tekið yfir námskeið um staðla sem áður voru á hendi Staðlaráðs Íslands. Staðlaráð á sæti í fagráði EHÍ og tekur þar þátt í þróun nýrra námskeiða.
Nokkur námskeið eru nú þegar komin á dagskrá á vorönn 2022 og má nálgast upplýsingar og skráningu um þau HÉR á síðunni okkar.
Frekari námskeið eru fyrirhuguð og verða þau auglýst jafnóðum og þau eru sett á dagskrá.