Stefna sett til 2025

Stjórn Staðlaráðs Íslands hefur samþykkt nýlega stefnu til ársins 2025 sem verður leiðarljós í öllu starfi Staðlaráðs næstu árin.  í grunninn er það stefna Staðlaráðs Íslands að vera framúrskarandi og eftirsóttur samstarfsaðili sem gegnir lykilhlutverki við að tengja saman hagsmunaaðila með það að markmiði að búa til einfaldar, samhæfðar og virðisaukandi lausnir á flóknum áskorunum og með því stuðla að frábærum árangri fyrirtækja og stofnana á sviði sjálfbærni, gæða, öryggis og afkomu.

Með stefnu sinni leggur Staðlaráð áherslu á hlutverk sitt sem samstarfsvettvangur hagsmunaaðila. Í því felst að fóstra og verkefnastýra stöðlunarverkefnum til að leysa áskoranir, ekki síst á sviði sjálfbærni og samfélagsábyrgðar, í anda heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna.

Nánar er hægt að lesa til um stefnu til ársins 2025 HÉR

Menu
Top