Mjög góð þátttaka á webinar um nýja útgáfu ISO 14001

Í dag hélt Fagstaðlaráð í umhverfis- og loftslagsmálum opið webinar um væntanlega nýja útgáfu ISO 14001:2026 – alþjóðlega staðalsins um umhverfisstjórnun.

Markmið webinarsins var ekki að fara yfir staðalinn línu fyrir línu, heldur að varpa ljósi á breyttar áherslur og hvaða þýðingu þær kunna að hafa fyrir umhverfisstjóra, stjórnendur og skipulagsheildir almennt. Sérstök áhersla var lögð á hvernig staðallinn færist í auknum mæli frá hefðbundnu samræmiskerfi yfir í stefnumótandi stjórntæki sem styður við áhættustýringu, framtíðarþol og verðmætasköpun.

Meðal þess sem fjallað var um:

  • Hvers vegna staðallinn er uppfærður í ljósi aukinnar loftslags- og náttúruáhættu
  • Tengingu umhverfisstjórnunar við tilgang og heildarstefnu skipulagsheilda
  • Áhættumiðaða hugsun og samþættingu við rekstrarákvarðanir
  • Lífsferilshugsun og virðiskeðjur
  • Árangursmat og lykilmælikvarða sem raunverulega hafa áhrif á ákvarðanir
  • Hvernig ISO 14001 getur verið grunnstoð í ESG-vinnu og sjálfbærniskýrslugerð

Í webinari kom skýrt fram að ný útgáfa ISO 14001 snýst ekki eingöngu um breytingar á orðalagi, heldur um breyttar væntingar til hlutverks umhverfisstjórnunarkerfa og þar með til hlutverks umhverfisstjóra.

Upptöku af webinari má nálgast hér fyrir þá sem ekki höfðu tök á að mæta.

Glærur má nálgast hér.

Fagstaðlaráð í umhverfis- og loftslagsmálum vinnur að eflingu faglegs vettvangs um staðla og umhverfisstjórnun á Íslandi og eru nýir þátttakendur ávallt velkomnir.

Menu
Top