Alþjóðlegu staðlasamtökin (ISO) hafa formlega gefið út nýjan alþjóðlegan staðal, ISO 14092:2026 – Climate change adaptation — Requirements and guidance on adaptation planning for local governments and communities. Staðallinn byggir brýr milli loftslagsvísinda og raunverulegrar aðgerðar, með það að markmiði að styðja sveitarfélög, opinberar stofnanir og aðra innviði við að skipuleggja, innleiða og fylgja eftir aðgerðaráætlunum gegn loftslagsáhrifum þar sem þau koma skýrast fram í daglegu lífi og starfsemi.
Loftslagsbreytingar eru ekki lengur fjarlæg ógn, þær birtast með auknum flóðum, hitabylgjum, þurrkum og sjávarrofi sem hafa áhrif á innviði, samfélög og efnahag. ISO 14092:2026 veitir heilsteyptann ramma sem hjálpar að umbreyta vísindalegum áhættumati í hagnýtar og staðbundnar aðgerðir. Staðallinn byggir á gagnreyndum ferlum sem leiða frá skilgreiningu ábyrgðar og umbreytingu áhættu í áþreifanlegar lausnir.
ISO 14092:2026 veitir skýra og stigbundna leiðbeiningu til að:
Þessi nýja útgáfa kemur í stað eldri tækniforskriftar ISO/TS 14092:2020 og hefur verið þróuð í nánu samspili við skylda staðla um loftslagsáhættu og fjármögnun aðgerða (s.s. ISO 14090, ISO 14091 og ISO 14093) til að mynda heildstæðan og samhæfðan ramma.
Með auknum þrýstingi á stjórnvöld og stofnanir til að bregðast við loftslagsbreytingum er þörf fyrir trausta og trúverðuga vegvísa sem stuðla að markvissri aðlögun. ISO 14092:2026 er verkfæri sem styrkir stefnumótun, eykur gagnsæi í ferlum og hjálpar til við að tryggja fjármögnun og stuðning til aðgerða í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar, þar á meðal Parísarsamkomulagið og sjálfbærnimarkmið Sameinuðu þjóðanna.
Þessi staðall býður upp á samræmdan og alþjóðlega viðurkenndan ramma sem getur nýst öllum þeim sem vinna að loftslagsaðlögun í samfélaginu, óháð umfanginu eða landfræðilegum aðstæðum.