Staðlaráð Íslands hefur skilað inn umsögn í samráðsgátt stjórnvalda vegna frumvarps til laga um breytingu á lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna (150/2020) og lögum um stjórnsýslu jafnréttismála (151/2020). Í umsögninni er lögð áhersla á mikilvægi þess að viðhalda lögbundinni jafnlaunavottun sem öflugu tæki í baráttunni gegn kynbundnum launamun á Íslandi.
Í umsögn Staðlaráðs er vísað til jákvæðrar reynslu af innleiðingu jafnlaunastaðalsins ÍST 85 því jafnlaunavottun, sem varð lögbundin árið 2017 hefur leitt til aukins gagnsæis, bættrar skjölunar og markvissari ákvarðanatöku í launamálum innan fjölmargra fyrirtækja og stofnana. Þá hefur launamunur kynjanna minnkað talsvert, bæði meðal vottaðra fyrirtækja og óvottaðra sem bendir til þess að hin lögbundna krafa hafi haft áhrif langt út fyrir þann ramma sem krafa um jafnlaunavottun gerði ráð fyrir.
Staðlaráð leggur áherslu á að endurskoðun staðalsins, sem hafin var 2018, verði lokið, til að tryggja að hann sé áfram aðgengilegur, hagnýtur og í takt við raunverulegar þarfir atvinnulífsins. Í umsögninni segir að eingöngu sé hægt að tryggja markmið stjórnvalda um að tryggja sömu laun fyrir jafnverðmæta vinnu með því að stjórnvöld ljúki við undirbúning að gerð krafna um jafnlaunakerfi, að tryggt sé að faggilding vottunaraðila uppfylli sömu kröfur og faggilding vegna sambærilegra stjórnunarkerfa og að lokið verði við leiðbeiningar sem gagnast ekki síst litlum fyrirtækjum til að auðvelda þeim innleiðingu jafnlaunakerfa.
Umsögnina má nálgast í heild sinni HÉR.