Fagstaðlaráð í umhverfis- og loftslagsmálum (FUM) hélt aðal- og vorfund sinn í gær, 19. maí, á Teams-fjarfundi sem stóð frá kl. 11.00 til 12.00. Þótt fundurinn væri stuttur var hann þéttskipaður hugsjón og metnaði um að efla kraft staðla í loftslags- og umhverfismálum.
Guðmundur Sigbergsson, formaður FUM, opnaði fundinn með hugvekju um vaxandi vægi staðlastarfs og fagnaði því starfi sem þó er farið á stað í tækninefndum og meðal starfsmanna Staðlaráðs síðan FUM var stofnað fyrir rúmu ári síðan.
Ritari ráðsins, Haukur Logi Jóhannsson, rakti síðan það helsta sem unnið var að á árinu:
Athygli vakti kynning Írisar Ólafsdóttur, stofnanda og framkvæmdastjóra nýsköpunarverkefnisins Orb. Orb er að hanna sérstakt app fyrir mælingar á kolefnisbindingu í skógum og munu starfsmenn Lands og skógar notast við appið í sumar við mælingar sínar samhliða hefðbundunum mælingum. Takmarkið með appinu er að gera mælingar sem þessar skilvirkari og nákvæmari með aðstoð tækninnar og spara þannig tíma og fjármuni.
Engar formlegar samþykktir voru bornar upp að þessu sinni, heldur nýttu ráðsmenn tímann til opins samtals um:
Samhljómur ríkti um að verkefni næsta árs væri að byggja upp ráðið, efla samstarf við lykilaðila og undirbúa stjórnarkjör sem fara munu fram vorið 2026.
Þótt engar ákvarðanir væru teknar að þessu sinni sat eftir sterkt ákall um samvinnu: að staðlar verði brú milli hugmynda og framkvæmda, milli nýsköpunar og heimsmarkmiða. FUM hyggst taka það kall alvarlega. Á næstu mánuðum mun ráðið halda áfram fræðslu, hvetja til þátttöku og sækja fram með stefnumótandi tillögum inn á bæði innlendan og alþjóðlegan vettvang.