Námskeið um áhættustjórnun skv. ISO 31000 21. og 23. mars

Endurmenntun HÍ og Staðlaráð Íslands standa fyrir námskeiði um áhættustjórnun skv. ISO 31000 dagana 21. og 23. mars n.k. kennari á námskeiðinu er Sveinn Ólafsson, verkfræðingur og sérfræðingur í staðlastarfi.


Markmið námskeiðsins er að þátttakendur þekki uppbyggingu ISO 31000 og kunni að beita staðlinum við að koma á ramma fyrir áhættustjórnun og gera áhættumat. Lögð verður áhersla á áhættustjórnun sem hluta af stjórnunarkerfi, t.d. samkvæmt ISO 9001.

Auk þess að fjalla um uppbyggingu og áherslur ISO 31000 og notkun staðalsins við gerð áhættumats verður farið yfir tengsl hans við staðalinn ISO 31010. Verkefnavinna verður unnin með leiðbeinanda. Einnig verður farið yfir tengsl áhættustjórnunar og öryggisstjórnunar með dæmi þar um.

Á námskeiðinu er fjallað um:

Uppbyggingu, áherslur og meginreglur.

Verkefni um meginreglur.

Rammann og verkefni um hann.

Ferlið og dæmisögu.

Verkefni um áhættumat.



Ávinningur þinn:

Þekkja uppbyggingu og meginreglur ISO 31000.

Geta beitt staðlinum við að gera ramma fyrir áhættustjórnun.

Kunna að beita staðlinum við áhættumat.

Skilja muninn á áhættustjórnun og öryggisstjórnun.

Fyrir hverja
Fyrir þá sem vilja öðlast skilning á ISO 31000 og framsetningu hans við áhættustjórnun. Hentar sérstaklega vel fyrir þá sem vilja efla áhættustjórnun í sínum skipulagsheildum, ekki síst hvernig hún tengist inn í þau stjórnkerfi sem eru fyrir. Hentar fyrir t.d. gæðastjóra, áhættu- og/eða öryggisstjóra og aðra stjórnendur sem vilja nýta sér leiðir til að minnka óvissu í rekstri.

Nánar um kennara
Sveinn V. Ólafsson, ráðgjafi og verkfræðingur.

Aðrar upplýsingar
Námskeiðið byggist upp á fyrirlestrum, umræðum og léttri verkefnavinnu með leiðbeinanda. Þátttakendur námskeiðs fá lesaðgang að staðlinum ISO 45001 á meðan námskeiði stendur. Einnig fá þátttakendur afslátt við kaup á staðlinum hjá Staðlaráði Íslands.

Menu
Top