Staðlaráð gefur út fréttabréfið Staðlamál tvisvar til þrisvar
sinnum á ári. Hægt er að óska eftir ókeypis áskrift að
Staðlamálum hér >>
Staðlapósturinn - rafrænt fréttabréf Staðlaráðs er
sent út um það bil einu sinni í mánuði. Þú getur gerst
áskrifandi að Staðlapóstinum hér >>
26.02.14 Upplýsingaöryggi - Ný útgáfa af ISO/IEC 27001 og ISO/IEC 27002
Alþjóðastaðlasamtökin (ISO/IEC) gáfu í september út nýja útgáfu
af hinum vinsælu
upplýsingaöryggisstöðlum ISO/IEC 27001 og ISO/IEC 27002. Óhætt er
að segja að breytingarnar eru umtalsverðar.
Ég hef fengið að fylgjast með þróun hinnar nýju útgáfu, bæði sem
umsagnaraðili fyrir ISACA í Bandaríkjunum um breytingar á
upplýsingaöryggisstöðlum og sem fulltrúi Staðlaráðs Íslands á fundi
vinnuhóps ISO um breytinguna. Hafa nokkrar ábendingar mínar ratað
inn í hina nýju útgáfu.
Hin nýja útgáfa, ISO/IEC 27001:2013 og ISO/IEC 27002:2013, er
fjórða heildstæða útgáfan sem kemur út. Fyrst litu ...
nánar >> 26.02.14 Rafrænn vörulisti - Tækniforskrift fyrir vörulista
Staðlaráð Íslands hefur gefið út tækniforskrift fyrir vörulista,
TSGeorg Birgisson 139
Rafrænn vörulisti. Tækniforskriftin
byggir á skilgreiningum CEN/BII verkefnisins (www.cenbii.eu) á
ýmsum viðskiptaskjölum og bætist því í hóp annarra íslenskra
tækniforskrifa fyrir reikning, kreditreikning og pöntun.
Ein skilgreining fyrir alla notendur
Tækniforskrift fyrir vörulista er ítarleg lýsing á ákveðinni
framsetningu vörulista sem nota má til að styðja við pöntun vöru,
endursölu vörunnar sem og birgðahald. Í tækniforskriftinni er því
lýst hvaða gögn geta verið í vörulistanu...
nánar >> 26.02.14 Rafrænir reikningar - Mikill sparnaður
Í nýlegri frétt á vef fjármálaráðuneytisins segir meðal
annars:
"Ætla má að um 500 milljónir geti sparast með notkun rafrænna
reikninga hjá ríkinu, en frá og með 1. janúar 2015 mun ríkið
einungis taka við rafrænum reikningum. [...]
Árlega berast ríkinu yfr 500 þúsund reikningar og í dag eru hátt í
30% þeirra rafrænir. Reynsla annarra þjóða sýnir að með rafrænum
reikningum sparast að minnsta kosti 1.000 krónur fyrir hvern
reikning. Mörg fyrirtæki hafa þegar sett sér markmið um að allir
reikningar þeirra verði rafrænir og ljóst að atvinnulífið nýtur
hagræðis af verkefninu á við ríkið. [...]
Sérstaklega var hugað að hagsmunum lítilla fyrirtækja og
einstaklinga. Tryggt hefur verið að slíkir aðilar geti nýtt sér
t...
nánar >> 26.02.14 Staðlabúðin - Vaktað Staðlasafn
Ein helsta nýjungin í nýrri vefverslun Staðlaráðs,
Staðlabúðinni, er vaktað staðlasafn. Í
grundvallaratriðum gengur vaktað staðlasafn
út á það, að staðlar bætast sjálfvirkt við staðlasafn notanda
("Staðlasafnið þitt") um leið og gengið er frá kaupum í
Staðlabúðinni. Notandi fær síðan tilkynningu í tölvupósti þegar
breytingar verða sem varða tiltekið skjal eða staðal. Hægt er að
afþakka vöktunina.
Notandi ræður ferð
Vöktun staðla er sjálfvirk, en notandi getur hagað vöktun
einstakra stað...
nánar >> 05.02.14 27000-staðlarnir - Forsala á íslenskum þýðingum
Þau merku tímamót urðu í lok september 2013, að Alþjóða
staðlasamtökin (ISO) og Alþjóða raftækniráðið (IEC) sendu frá sér
nýja útgáfu af hinum vinsælu og útbreiddu upplýsingaöryggisstöðlum
ISO/IEC 27001, um stjórnun upplýsingaöryggis, og ISO/IEC
27002, um starfsvenjur fyrir stjórnun upplýsingaöryggis.
Staðlarnir byggja á skilgreiningum hugtaka í staðlinum ISO/IEC
27000, sem kom út í janúar 2014.
Ákveðið hefur verið að bjóða þýddar útgáfur staðlanna í forsölu
til að fjármagna þýðingu þeirra. Það væri ánægjulegt og
upplýsingatækninni til framdráttar að geta boðið upp á staðlana í
íslenskri þýðingu.
- Staðlarnir þrír kosta óþýddir um
67.52... nánar >>