Beint á leiðarkerfi vefsins

ISO 9000 - Innri úttektir samkvæmt ISO 19011

Námskeið fyrir þá sem vilja læra að gera innri gæðaúttektir samkvæmt úttektarstaðlinum ISO 19011 eða þurfa að þekkja framgang gæðaúttekta.

Markmið námskeiðsins er að þátttakendur skilji til hlítar tilgang og ferli innri úttekta á gæðakerfi samkvæmt ISO 19011, geti gert grein fyrir mikilvægustu atriðum slíkra úttekta og séu að loknu námskeiðinu færir um að framkvæma innri úttekt í samvinnu við reyndan úttektarmann.

Á námskeiðinu er byrjað á stuttri kynningu á  kröfunum í ISO 9001. Síðan farið yfir grundvallaratriði og skipulag gæðaúttekta samkvæmt ISO 19011. Þátttakendur vinna hópverkefni um gæðaúttektir.

Innifalin námsgögn samanstanda af staðlinum ÍST EN ISO 19011, ásamt glærum úr kennsluefni. 

Dagskrá 29. mars 2012 (skráning, sjá neðar)

12:15-13:15 Kröfurnar í ISO 9001 - upprifjun
13:15-13:20 hlé
13:20-14:00 Úttektir, viðmið og markmið - Úttektarmenn
14:00-14:05 hlé
14:05-14:45 Skipulag og undirbúningur - Úttektarskjöl


14:45-15:00 Kaffi


15:00-16:00 Að gera úttekt - Mat og niðurstöður
16:00-16:45 Verkefni - Kynning á niðurstöðum verkefna
16:45-16:55 Eftirfylgni úttekta


17:00 Samantekt - Námskeiði slitið 

Dagsetning og tími:

29. mars 2012 (skráning, sjá neðar)

Staður: Staðlaráð Íslands, Skúlatúni 2.
Verð: 25.500 kr. Allt innifalið, námsgögn og viðurværi

Hámarksfjöldi þátttakenda:

Leiðbeinandi:

14 manns

Sveinn V. Ólafsson, verkfræðingur

Skráðu þig á póstlista og fáðu tilkynningu þegar skráning hefst á næsta námskeið. Póstlistinn er hér >>


Stjórnborð

Forsíða vefsinsStækka leturMinnka leturHamur fyrir sjónskerta og lesblindaSenda þessa síðuPrenta þessa síðuVeftré

Staðlabúð


Finna og panta staðal

Hér má finna og panta alla gildandi íslenska staðla, evrópska staðla og frumvörp að íslenskum og evrópskum stöðlum.

Pantanir eru póstlagðar samdægurs eða næsta virka dag.

>> Ítarleg leit