Beint á leiðarkerfi vefsins

Rafstaðlaráð (RST)

Rafstaðlaráð (RST) er fagstaðlaráð á vegum Staðlaráðs Íslands. RST var stofnað 7. júní 1994 og voru stofnaðilar 16  talsins. Áður starfaði Fagstjórn í raftækni um fjögurra ára skeið á vegum Staðlaráðs.

Félagar í Rafstaðlaráði (RST) eru þeir sem hafa áhuga á rafstöðlunarmálum og/eða starfa á sviði rafstöðlunar. Þó að Staðlaráð,  Rafstaðlaráð og önnur fagstaðlaráð séu frjáls félagasamtök fyrirtækja, stofnana og annarra aðila sem koma með einhverjum hætti að stöðlum og stöðlun, þá eru starfsskyldur Staðlaráðs bundnar í lög um staðla,  númer 36  frá 2003. Vegna þessarar lagaskyldu kemur hluti af rekstrarfé Staðlaráðs frá ríkinu. 

Aðildargjöld Rafstaðlaráðs standa undir mestum hluta rekstrarkostnaðar þess, en einnig koma til tekjur af útgáfu handbóka og útgáfu séríslenskra staðla á raftæknisviði. Rafstaðlaráð lítur eftir hagsmunum íslenskra fyrirtækja og almennings á sviði raftækni og fylgist með stöðlun á þessu sviði. Það gefur út handbækur og stendur fyrir þýðingu mikilvægra staðla ef fjármunir fást í verkið. Með aðild gefst félögum tækifæri á að fylgjast með rafstöðlun, fá þar möguleika á að starfa að staðlamálum á Evrópuvettvangi og um leið að efla starfsemi Rafstaðlaráðs. Með samstarfi við aðrar þjóðir á vettvangi rafstöðlunar hefur RST, undir merkjum Staðlaráðs, náð að koma fram sem marktækt afl í heimi stöðlunar í Evrópu.  

RST hefur, auk þýðingar staðla og útgáfu handbóka, meðal annars beitt sér fyrir gerð sérstakra þjóðarviðauka, þegar þær aðstæður skapast að þörf  er á að vera með sérkröfur í rafstöðlum fyrir Ísland. Slík þörf getur skapast vegna óblíðra náttúruafla svo sem ísingar, jarðskjálfta eða vinds. Við hvetjum alla þá sem hagsmuni og/eða  áhuga hafa á rafstöðlun til að gerast aðilar að Rafstaðlaráði. Með aðild að Rafstaðlaráði er viðkomandi jafnframt orðinn aðili að Staðlaráði Íslands sem tryggir honum aðgang að upplýsingum um stöðlun á öðrum fagsviðum. Aðildin er mun ódýrari en þig grunar og veitir þér ýmis réttindi , sjá hér >>

Rafstaðlaráð notar skammstöfunina RST, sem auk tilvísunar í nafnið, er valin með hliðsjón af því að þessir bókstafir voru lengi notaðir fyrir heiti fasanna í þrífasa rafkerfum, þar til núgildandi staðall um það efni tók gildi.


Stjórnborð

Forsíða vefsinsStækka leturMinnka leturHamur fyrir sjónskerta og lesblindaSenda þessa síðuPrenta þessa síðuVeftré

Staðlabúð


Finna og panta staðal

Hér má finna og panta alla gildandi íslenska staðla, evrópska staðla og frumvörp að íslenskum og evrópskum stöðlum.

Pantanir eru póstlagðar samdægurs eða næsta virka dag.

>> Ítarleg leit


Slóðin þín:

Fagsvið » Rafstaðlaráð (RST)