Áhugavert efni
14.9.2011
ISO 9001 fyrir lítil fyrirtæki - Leiðsögn (3. útgáfa)
Út er komin í íslenskri þýðingu 3. útgáfa hinnar vinsælu bókar, ISO 9001 fyrir lítil fyrirtæki - Leiðsögn.
Með bókinni geta fyrirtæki notið leiðsagnar manna sem áttu stærstan þátt í gerð ISO 9000 gæðastjórnunarstaðlanna og gerst þekkja hvernig taka á upp gæðastjórnunarkerfi byggt á ISO 9001:2008.
Bókin er ómetanlegt stuðningsefni við kjarnastaðlana fjóra í ISO 9000 röðinni; ISO 9000, 9001, 9004 og 19011.
13.1.2011
ÞJÓÐARVIÐAUKAR VIÐ ÞOLHÖNNUNARSTAÐLA KOMNIR ÚT
Þjóðarviðaukar með sérákvæðum við evrópska þolhönnunarstaðla, Eurocodes, tóku gildi 23. desember 2010.
Jafnframt voru
felldir úr gildi þolhönnunarforstaðlar, FS ENV Eurocodes, ásamt tilheyrandi þjóðarskjölum. Einnig danskir þolhönnunarstaðlar ásamt eftirfarandi séríslenskum stöðlum sem giltu með þeim:
• ÍST 12 Álagsforsendur
• ÍST 14 Steinsteypuvirki
• ÍST 15 Grundun
Gefin hefur verið út bók sem inniheldur íslenska þjóðarviðauka við alla evrópsku þolhönnunarstaðlana. Þjóðarviðaukarnir eru eingöngu á ensku, eins og þolhönnunarstaðlarnir sem þeir eiga við.
Innskráning
Finna og panta staðal
Hér má finna og panta alla gildandi íslenska staðla, evrópska staðla og frumvörp að íslenskum og evrópskum stöðlum.
Pantanir eru póstlagðar samdægurs eða næsta virka dag.












