Áhugavert efni
14.9.2011
ISO 9001 fyrir lítil fyrirtæki - Leiðsögn (3. útgáfa)
Út er komin í íslenskri þýðingu 3. útgáfa hinnar vinsælu bókar, ISO 9001 fyrir lítil fyrirtæki - Leiðsögn.
Með bókinni geta fyrirtæki notið leiðsagnar manna sem áttu stærstan þátt í gerð ISO 9000 gæðastjórnunarstaðlanna og gerst þekkja hvernig taka á upp gæðastjórnunarkerfi byggt á ISO 9001:2008.
Bókin er ómetanlegt stuðningsefni við kjarnastaðlana fjóra í ISO 9000 röðinni; ISO 9000, 9001, 9004 og 19011.
13.1.2011
ÞJÓÐARVIÐAUKAR VIÐ ÞOLHÖNNUNARSTAÐLA KOMNIR ÚT
Þjóðarviðaukar með sérákvæðum við evrópska þolhönnunarstaðla, Eurocodes, tóku gildi 23. desember 2010.
Jafnframt voru
felldir úr gildi þolhönnunarforstaðlar, FS ENV Eurocodes, ásamt tilheyrandi þjóðarskjölum. Einnig danskir þolhönnunarstaðlar ásamt eftirfarandi séríslenskum stöðlum sem giltu með þeim:
• ÍST 12 Álagsforsendur
• ÍST 14 Steinsteypuvirki
• ÍST 15 Grundun
Gefin hefur verið út bók sem inniheldur íslenska þjóðarviðauka við alla evrópsku þolhönnunarstaðlana. Þjóðarviðaukarnir eru eingöngu á ensku, eins og þolhönnunarstaðlarnir sem þeir eiga við.
8.3.2010
TS 135 Einfaldur rafrænn reikningur – NES umgjörð 4
Tækniforskriftin þjónar sem leiðarvísir fyrir forritara hugbúnaðarkerfa og aðra þá sem koma að innleiðingu rafrænna reikninga í fyrirtækjum og stofnunum.
Fjallað er um TS 135 í Staðlamálum, fréttabréfi Staðlaráðs >>
Aðrir tenglar sem tengjast TS 135 >>
12.1.2009
Leikvallastaðlar
Leikvallastaðlar - fyrir byggngarfulltrúa sveitarfélaga, verktaka, stjórnendur grunnskóla og leikskóla og aðra sem koma að hönnun, uppsetningu eða viðhaldi og rekstri leiksvæða eða leiktækja. Í ritinu er að finna staðla úr ÍST EN 1166 röðinni Playground equipment að viðbættum ÍST EN 1177 Impact absorbing playground surfacing - Safety requirements and test methods.
Leikvallastaðlarnir á 19.706,-kr.
5.6.2007
ÍST 120 Skráning og flokkun landupplýsinga – Fitjuskrá
Markmiðið með útgáfu staðalsins er meðal annars að koma á samræmdri flokkun gagna í íslenskum landupplýsingakerfum ekki síst til að auka og bæta aðgengi að slíkum upplýsingum.
12.3.2007
SI-kverið. Lítil handbók um SI‑einingarnar og notkun þeirra
ÓMISSANDI uppsláttarrit við nám og kennslu og dagleg störf í tæknigreinum. - Kverið kemur líka að góðu gagni við baksturinn og matseldina ef breyta þarf til dæmis pundum í kíló eða Celsíus í Farenheit.
Verð aðeins 705 kr.
23.6.2006
ÍST 51 Byggingarstig húsa
31.5.2006
ÍST 200 Raflagnir bygginga
ÍST 200 Raflagnir bygginga Fyrir fagmenn á rafmagnssviði.
Ómissandi verkfæri til að uppfylla reglugerð um raforkuvirki. Nánari upplýsingar og pantanir...
29.5.2006
Markastaðlarnir
Fyrir byggngarfulltrúa sveitarfélaga, verktaka, verkfræðistofur, stjórnendur grunnskóla og leikskóla ...
og aðra sem koma að útboðslýsingum, hönnun, uppsetningu og eftirliti með mörkum og búnaði fyrir boltaíþróttir.
Markastaðlarnir (sett) á 15.217 kr.
29.5.2006
Upplýsingarit með almennum upplýsingum um CE-merkið
|
|
29.5.2006
Rafstaðlaráð - Upplýsingarit um stöðlun á raftæknisviði
Rafstaðlaráð - Upplýsingarit um stöðlun á raftæknisviði
Ritinu er ætlað að vera staðalrit rafiðnaðargeirans. Þar er að finna almennar jafnt og sértækar upplýsingar sem lúta að stöðlun á raftæknisviði.
Rafstaðlarit á 1099,-kr.
Panta
Innskráning
Finna og panta staðal
Hér má finna og panta alla gildandi íslenska staðla, evrópska staðla og frumvörp að íslenskum og evrópskum stöðlum.
Pantanir eru póstlagðar samdægurs eða næsta virka dag.



Framleiðendur og innflytjendur bera sjálfir ábyrgð á að vörur sem þeir framleiða eða flytja inn séu CE-merktar, falli þær undir svokallaðar nýaðferðartilskipanir Evrópusambandsins. Eftir að varan hefur verið CE-merkt má markaðssetja hana hindrunarlaust á öllu Evrópska efnahagssvæðinu. Það er því eftir miklu að slægjast. Í ritinu eru almennar upplýsingar um CE-merkið og hvað felst í því að CE-merkja vöru. 










